Hetjuferð í Hlöðuvík

5 Dagar

Andleg ritsmiðja í hrífandi náttúru Hornstranda

Skráningu lýkur þann 18.mars!


  • 230.000
  • 16.ágúst til 20.ágúst 2026
  • Ásdís Guðmundsdóttir/Björg Árnadóttir
  • Staðfestingargjald er 30.000 krónur og er óafturkræft, nema ferð sé felld niður

Ferðalýsing

Upplifðu magnaða náttúru Hornstranda og finndu þína innri hetju 

Fiðrildaferðir og Stílvopnið taka nú höndum saman og bjóða upp á spennandi ferð til Hlöðuvíkur á Hornströndum. 
Björg Árnadóttir heldur utan um Hetjuferðarnámskeið og leiðir þig til stefnumóts við þína innri hetju.
Inn í námskeiðið fléttast svo gönguferðir og útivera í óviðjafnanlegu og ósnortnu umhverfi Hlöðuvíkurinnar. Hollur og staðgóður morgunmatur, hádegishressing og kvöldmatur innifalinn ásamt ferðum frá Ísafirði til Hornvíkur og frá Hlöðuvík.

Hetjuferðin

Hetjuferðin er ævaforn frásagnaraðferð, þrungin andlegri visku og sálfræðilegri dýpt. Í Hlöðuvík skoðum við áskoranir hetjunnar og skrifum sögur, skáldaðar eða úr eigin reynsluheimi, sem dýpka skilning okkar á andlegu ferðalagi hetjunnar sem og höfundarins.

Sjá nánar um hetjuferðina með því að smella hér

Um Hlöðuvík

Á milli Kjalárnúps í Almenningum vestari og Hælavíkurbjargs liggja þrjár víkur, Kjaransvík, Hlöðuvík og Hælavík. Þær eru kallaðar einu nafni Víkurnar.

Inn af Hlöðuvík gengur dálítið dalverpi inn í landið, umkringt af snarbröttum fjöllum. Að austan stendur Skálakambur og þar undir var býlið Búðir. Ókennilegur draugur, kallaður Indriði,  gengur þar um að nóttu til og heldur fólki vöku með ýmsum hávaða.

Landleiðin frá Hlöðuvík til Hælavíkur liggur um snarbrattan Skálakambinn, sem vel getur verið brattasta alfaraleið sem farin var milli bæja á Íslandi. Greinileg og góð gata liggur upp Skálakamb sem virðist ekki árennilegur úr fjarlægð og í Skálinni er tjörn sem lækur fellur úr niður brekkuna. Þegar komið er að bjargbrúninni þarf að klífa ofurlitla kletta, en það ætti ekki að vera neinum ofraun. Geysilega mikið og gott útsýni er ofan af brúninni yfir Víkurnar.

Að vestanverðu í Hlöðuvík er Álfsfell. Þar er álfabyggð og þar bjó álfkonan Ásdís sem létti Hlöðuvíkurbúum róðurinn með því að bjarga mannfólkinu um mat og segja til um afla. Gekk hún jafnvel svo langt að taka tvö mannabörn í fóstur. Í dalbotninum er skeifulaga fjallgarður kenndur við Jökuldali.

Undir Álfsfelli stóð bærinn Hlöðuvík þar sem í dag má sjá sóleyjar þar sem áður voru grösug tún.  Gönguleið er frá Hlöðuvík um Hlöðuvíkurskarð yfir í Veiðileysufjörð í Jökulfjörð.

Aðstaðan

Tvö hús eru í Hlöðuvík, Búðabær og Búðasel.

Á staðnum eru fjögur vatnssalerni og þrjár sturtur. Sturturnar eru kynntar með gasi og því er mikilvægt að taka stuttar sturtuferðir. Í Búðabæ og Búðaseli er gist á svefnloftum á flatsængum. Þar eru nægar dýnur fyrir alla, en hver gestur þarf að hafa með sér svefnpoka, kodda og lak. Húsin eru kynnt með viðarkamínum. Hægt er að hlaða rafmagnstæki á 12 volta tengingum og einnig hraðar þegar díselvél er ræst. Neyðarsími og talstöðvar eru í báðum húsum.

Aðkoma að húsunum
Aðkoman að húsunum í Hlöðuvík er krefjandi og eins þegar farið er frá Hlöðuvík. Lent er í fjöru á gúmmíbát þar sem geta verið sleipir steinar og þang og brekka er niður að fjörunni. Allir gestir þurfa að hjálpast að við að setja farangur í báta þegar farið er heim.

Umgengni
Allir gestir taka þátt í að ganga vel um skálana og halda þeim huggulegum, þannig að það fari vel um alla.

Útbúnaðarlisti

Hver gestur má taka með sér eina 70–90 lítra sjótösku. Allt sem hann/hún telur sig þurfa í óbyggðum þarf að rúmast í hana. Að auki þarf hver gestur að vera með einn lítinn dagpoka sem rúmar nauðsynjar fyrir dagsgöngur. 

Svefnpoki
Koddi
Lak
Útivistarföt/undirföt (þriggja laga) Athugið að kalt getur orðið á Hornströndum á þessum tíma árs.
Gönguskór og göngusokkar
Inniskór (Crocs bestir, léttir og líka hægt að nota í sjóinn)
Handklæði
Sundföt
Hleðslubanki fyrir síma/myndavélar (hlaðið öllu niður áður en farið er í sambandleysi)
Lyf (ef með þarf)
Tannbursti,  tannkrem, varasalvi, sólarvörn, krem, sjampó og næring, eyrnatappi
Stílabók og penni/blýantur, rafræn skriffæri ef vill.
Annað sem þú telur mikilvægt

Fyrirvari og staðfestingargjald

Staðfestingargjald er 30.000 og er óendurkræft nema að ferð verði felld niður.

Fiðrildaferðir áskilja sér rétt til að aflýsa ferðinni ef að lágmarksfjöldi næst ekki eða að veður hamlar bátsferðum. Í þeim tilfelli er gjaldið endurgreitt að fullu.

Lágmarksfjöldi í ferðina er 10 manns og hámarksfjöldi 16 manns.

Dagskrá

  • 15.ágúst

    Bátsferð til Hornvíkur

    Kl. 08:00
    • Allar hetjur þurfa að mæta á Ísafjarðarbryggju (Borea Adventures)
    • Dagpokar skulu vera tilbúnir með nesti fyrir daginn og fatnað fyrir göngu frá Hornvík til Hlöðuvíkur.
    • Sjótöskur þurfa að vera vel merktar, vel pakkaðar og vatnsvarðar.

    Kl. 09:00
    • Brottför frá Ísafjarðarhöfn. Farangur settur í land í Hlöðuvík.

    Kl. 11:30
    • Áætluð koma í Hornvík

    Kl. 13:00
    Gengið er frá Höfn í Hornvík og er vegalengdin um 10.5 km. Leiðin er vörðuð, frekar krefandi (3 skór) og er hækkun 379 m.ys. Yfirborðið er blandað, hættur geta verið vegna berghruns, en grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum. Það eru ár á leiðinni sem þarf að vaða, og votlendi og mýrar. Leiðin er þekkt fyrir vindstrengi.

    Frá Höfn er haldið inn í Hornvík og svo Rekavík bak Höfn þar sem áin er þveruð. Síðan er haldið í Atlaskarð og síðan tekur brattur Skálakamburinn við sem leiðir okkur til Hlöðuvíkur.

    Á göngunni munum við hrista hópinn saman með ýmsum æfingum.

    Sjá kort hér að neðan.

    /https://loc.wiki/t/108962009?wa=sc

    Kl. 18:00
    • Áætluð koma í Hlöðuvík

    Kl. 19:00
    • Kvöldmatur

    Kl. 21:30
    • Kvöldvaka/samvera

  • 16.ágúst

    Hetjuferðin hefst

    Kl. 07:00–09:00
    • Morgunverðarhlaðborð

    Kl. 10:00
    • Hugmyndafræði hetjuferðarinnar kynnt – og hetjan sköpuð

    Kl. 12:00
    • Hádegishressing

    Kl. 16:00
    • Framhald: Hetjan í sínum þekkta heim heyrir kall til ævintýris. 

    Kl. 20:00
    • Kvöldmatur

    Kl. 21:30
    • Kvöldvaka

  • 17.ágúst

    Horfst í augu við hindranameistarann

    Kl. 07:00–09:00
    • Morgunverðarhlaðborð

    Kl. 10:00
    • Hetjan horfist í augu við hindrunarmeistara sína og stígur inn í hinn óþekkta heim þar sem mæta henni margvísleg þroskaverkefni.  

    Kl. 12:00
    • Hádegishressing og útivera

    Kl. 16:00
    • Framhald: Hetjan,  hindranir og óþekktur heimur ævintýrisins

    Kl. 20:00
    • Kvöldmatur

    Kl. 21:30
    • Kvöldvaka

  • 18.ágúst

    Hetjan umbreytist

    Kl. 07:00–09:00
    • Morgunverðarhlaðborð

    Kl. 10:00
    • Hetjan fer í gegnum ferli friðþægingar og sátta, umbreytist og þiggur gjöf sem hún tekur með sér aftur til síns þekkta heims. 

    Kl. 12:00
    • Hádegishressing og útivera

    Kl. 16:00
    • Framhald: Hetjan, sáttin og heimferðin.

    Kl. 20:00
    • Kvöldmatur

    Kl. 21:30
    • Kvöldvaka

  • 19.ágúst

    Heimferð

    Kl. 07:00–09:00
    • Morgunverðarhlaðborð

    • Gengið frá, pakkað og allur farangur settur niður í fjöru

    Kl. 11:30
    • Bátur sækir hópinn

    Kl. 16:00
    • Áætluð heimkoma á Ísafjörð (með fyrirvara)

Innifalið

  • Bátsferð til Hornvíkur
  • Bátsferð frá Hlöðuvík
  • Gisting í svefnpokaplássi
  • Morgunmatur, hádegishressing og kvöldmatur
  • Námskeið og námskeiðsgögn

Ekki innifalið

  • Göngunesti
  • Áfengir drykkir, ef vill