Dásemdir Indlands

15 Dagar

Skráningu lokið!

  • 9. janúar til 23.janúar 2026
  • Ásdís Guðmundsdóttir og Jenny D’Souza
  • Íslenska og enska
  • Tvíbýli - 770.000 Einbýli - 890.000
  • Staðfestingargjald er kr. 100.000 og greiðist við skráningu í ferð. Gjaldið greiðist inn á reikning 133-26-016446, kt. 570724-1850.

Ferðatilhögun

Ferðalýsing

Athugið: Enn eru laus sæti í ferðina en bóka þarf flug sérstaklega.

Ferðin hefst í Mumbai, þar sem gestir njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða, við smökkum á spennandi götumat, fræðumst um sögu borgarinnar, heimsækjum Dharavi Slum og Bollywood.

Næst er flogið til Cochin á Suður-Indlandi, þar sem farið er á matreiðslunámskeið, danssýningu og skoðum Fort Kochi, sem er sérstaklega sjarmerandi bær með ríkri menningu.

Frá Cochin er ekið til fjallahéraðsins Munnar, þar sem við skoðum te- og  kryddgarða og förum á fílabúgarð.

Því næst er ferðast til Allepey, þar sem gestir upplifa siglingu á vatnasvæði og heimsækja falleg hof.

Síðasti áfangastaðurinn er Goa en þar fá gestir frjálsan tíma til að njóta strandmenningarinnar, slaka á og kynnast stemningu svæðisins.  
Í þessari ferð fá þátttakendur einnig innsýn inn í menningu indverja, hindúisma,  fræði Ayurveda og yoga.

Flogið er til Mumbai frá London (næturflug) og gist er á 5 stjörnuhótelum, nema í Goa þar sem gist er á 4 stjörnu hóteli.

Fararstjórn

Fararstjóri er Ásdís Guðmundsdóttir, eigandi Fiðrildaferða en hún hefur leitt hópa til Indlands síðan 2020 og hefur hún því mikla og góða reynslu af landi og þjóð.

Indlandsævintýri hennar hófst árið 2017 er hún sótti ráðstefnu í Mumbai. Þar bókaði hún sér matreiðslunámskeið hjá Jenny hjá Hands on Curry sem stofnaði síðan ferðaskrifstofu sína árið 2019.
Hún bauð þá Ásdísi að koma út með hóp og fór fyrsti hópurinn út árið 2020 í ógleymanlega ferð.

Leiðsögn

Leiðsögukona í ferðinni er Jenny D'Souza, eigandi ferðaskrifstofunnar Get Involved in India, en hún er fædd og uppalin á Indlandi og býr í Mumbai.

Jenný er samstarfsaðili Fiðrildaferða og hefur tekið á móti gestum frá Íslandi síðan 2020. Hún leggur áherslu á persónulega nálgun og er það samdóma álit allra sem hafa ferðast með okkur að hún sé einstök.

Jenny fylgir hópnum alla leið og er frábært að hafa innfædda manneskju til leiðsagnar, einhvern sem þekkir til menningar- og siða og getur haft samskipti við heimafólk. Hún hefur einstakt lag á því að láta fólki líða vel og leggur sig fram við að uppfylla óskir hvers og eins.

Greiðsluskilmálar

Staðfestingargjald er kr. 100.000 og tryggir bókun í ferð. Gjaldið er óafturkræft.
Fullnaðargreiðsla skal berast 8 vikum fyrir brottför.

Ferðadagskrá

  • 9.
    janúar

    Ferðadagur

    Flogið frá Keflavík til Heathrow kl.18.10-21 og lent kl. 21.10
    Flogið frá Heathrow til Mumbai kl.9.30 þann 10. janúar og lent í Mumbai kl. 0.15 þann 11.janúar 

  • 11.
    janúar

    Sögulegar byggingar, hindúismi og heimboð

    Í dag skoðum við athyglisverða staði og byggingar í miðborginni, skoðum heimili Ghandis og fræðumst um hindúisma og menningu Indlands.  

     Um kvöldið eigum við heimboð til fararstjórans Jennyar og fáum við ekta heimaveislu á indversku heimili.     

    Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur innifalinn

  • 12.
    janúar

    Dharavi hverfið og skólaheimsókn

    í dag heimsækjum við Dharavi slum hverfið sem er stærsta "slum" í Asíu. Við fræðumst um starfsemina sem þar fer fram og fólkið sem þar býr, skoðum textíl, leirkera- og leðurvinnsluna auk endurvinnslu og fáum síðan að skoða heimili leiðsögumanns okkar sem býr á svæðinu.

    Seinnipartinn heimsækjum við skóla fyrir börn sem rekinn er af kaþólskri kirkju.

    Kvöldið frjálst til að slaka á eða skoða sig um.

    Morgunmatur og hádegismatur innifalinn

  • 13.
    janúar

    Cochin og matreiðslunámskeið

    í dag er ferðinni heitið til Cochin á Suður-Indlandi með flugi.

    Gist á hótelinu Fragrant Nature - 5 stjörnur  https://www.fragrantnature.com/mattancherry-cochin/ 

    Matreiðslunámskeið heima hjá Nimmy og njótum þess að borða saman.

    Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur innifalinn

  • 14.
    janúar

    Fort Kochin

    Í dag skoðum við Fort Kochi sem er sérstaklega sjarmerandi bær með hollenska, portúgalska og breska arfleifð sem sést í arkitektúr og hönnun bæjarins. Þar má sjá fiskimenn að veiðum með bambus stöngum og svo er fiskurinn seldur á markaði við sjávarsíðuna. Við skoðum einnig Jew Town, sem er þekktur fyrir litlar verslanir,  listmuni og handverk og notaleg kaffihús og veitingahús. Við borðum hádegismat á einum slíkum veitingastað við sjávarsíðuna og upplifum svo Kathakali danssýningu seinnipartinn.

    Kvöldið frjálst til að slaka á.

    Morgunmatur og hádegismatur innifalinn

  • 15.
    janúar

    Munnar

    í dag er ferðinni heitið til fjallahéraðsins Munnar en þangað er 4-5 tíma akstur.

    Við tékkum inn á hótel og slökum á.

    Morgunverður og hádegisverður

  • 16.
    janúar

    Te og krydd í Munnar

    Við heimsækjum te- og kryddekrur en Kerala er þekkt fyrir krydd eins og kardemommur, pipar og kanel svo eitthvað sé nefnt. Við förum einnig á fílabúgarð þar sem við kynnumst þessum stórbrotnu skepnum.

    Kvöldið frjálst til slökunar.

    Gisting á hótelinu Fragrant Nature https://www.fragrantnature.com/pothamedu-munnar/ 

     Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur innifalinn.

  • 17.
    janúar

    Munnar og indversk klæði

    Í dag klæðumst við og borðum eins og Kerala búi!

    Morgunmatur og hádegismatur innifalinn.

  • 18.
    janúar

    Allepey og hindúahof

    Við ökum til Allepey þar sem við njótum einstakrar fegurðar Guðs eigin lands (Gods own country, eins og það er kallað). Alleypey er umlukið vötnum þar sem  pálmatrén setja svip sinn á umhverfið.
    Um kvöldið förum við og heimsækjum tvö falleg hof í bænum Alleppey. 


    Gisting á hótelinu Sterling Lake Palace Alleppey – 5 stjörnur
    https://www.sterlingholidays.com/resorts-hotels/lake-palace-alleppey 

    Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur innifalinn.

  • 19.
    janúar

    Sigling um vatnahéraðið

    Í dag upplifum við dásamlega siglingu um vatnasvæði Alleppey.  Það er engu líkt að sigla þarna um í ró og næði frá skarkalanum og njóta matar um borð.

    Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur innifalinn.

  • 20.
    janúar

    Goa

    Í dag tökum við daginn snemma þar sem við eigum bókað flug klukkan 6:15 frá Kochi til Goa.

    Við komum til Goa um kl.8.00 og förum beint á hótelið. Dagurinn frjáls til að slaka á, fara á ströndina, í nudd eða bara á hótelbarnum.

     Morgunmatur innifalinn

  • 21.
    janúar

    Slakað á í Goa

    Við slokum á þennan daginn en kl. 19.00 förum við og borðum kveðjukvöldverð með dagnsi og söng.

    Morgunmatur og kvöldmatur innifalinn.

  • 22.janúar

    Ferðadagur

    Flogið til Mumbai og gist í eina nótt.

  • 23.janúar

    Ferðadagur

    Flogið frá Mumbai kl. 02:15 og lent á Heathrow kl. 7.15

    Flug frá Heathrow kl. 13.50 og lent á Íslandi kl.17.15.

Innifalið

  • Gisting í á 4-5 störnuhótelum (boutique og heritage)
  • Matur skv. dagskrá
  • Flug frá Mumbai til Cochin
  • Flug frá Cochin til Goa
  • Flug frá Goa til Mumbai
  • Akstur á milli staða
  • Aðgangseyrir inn á söfn og annað sem tiltekið er í dagskrá​
  • Íslensk fararstjórn
  • Indverskur fararstjóri sem fylgir hópnum alla leið

Ekki innifalið

  • Flug til og frá Indlandi en aðstoð við bókun á flugi er innifalin
  • Áfengi og málsverðir sem ekki er minnst á í dagskrá
  • Dægradvöl sem ekki er minnst á í dagskrá
  • Þjórfé

Spurt og svarað

Þarf ég að fá vegabréfsáritun til Indlands?

Já, nauðsynlegt er að fá vegabréfsáritun þegar ferðast er til Indlands og er sótt um áritun á netinu.

Þarf ég að fá bóluefni ?

Gott er að huga að bólusetningum áður en ferðast er til Indlands en persónubundið er hvað hver og einn þarf.

Best er að fara á Heilsuveru og fá þar bólusetningaráætlun, en þá er skráð inn hvert er ferðast og áætlunin miðast við það.

Hvernig er best að huga að hreinlæti og heilsu?

Þegar ferðast er til Indlands þá þarf að hafa í huga að drekka aldrei vatn úr opnum flöskum/könnum, alltaf úr lokuðum flöskum.

Ekki er mælt með að borða hrátt grænmeti og ávexti, nema ávexti sem eru með hýði.

Einnig er gott að hafa meðferðis handspritt og nota það í ríkum mæli.

Gott er að hafa meðferðis Imodeum töflur sem geta komið sér vel ef magaóþægindi kræla á sér.