Kirgistan – heillandi menning og náttúra

13 Dagar

Stórbrotin náttúra og heillandi menning

  • Tvíbýli 489.000 - Einbýli 599.000
  • 26.maí til 7.júní 2026
  • Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
  • Staðfestingargjald er kr. 100.000 og greiðist við skráningu í ferð. Gjaldið greiðist inn á reikning 133-26-016446, kt. 570724-1850.
  • Íslenska og enska

Kirgistan

Kirgistan er landlukt ríki í Mið-Asíu með landamæri að Kína í austri, Kasakstan í norðri, Tadsíkistan í suðri og Úsbekistan í vestri. Í fjöllunum búa hirðingjar sem hafa ekki breytt sínum lífsstíl í hundruðir ára. Landið er umkringt Tíbet-fjöllunum sem eru hluti af Himalaya fjallgarðinum og eru heimkynni hirðingjanna sem hér búa. 

Íbúarnir eru um 6,5 milljón og býr um 1 milljón þeirra í höfuðborginni Bishkek sem jafnframt er stærsta borg landsins. Kirgisar eru meirihluti íbúa landsins en þar búa líka stórir hópar Rússa og Úsbeka. Kirgiska er tyrkískt mál og er opinbert mál landsins ásamt rússnesku. 90% íbúa Kirgistans eru múslimar og meirihlutinn aðhyllist súnní íslam. Menning Kirgistans ber merki um áhrif Rússa, Mongóla og Írana. 

Ferðadagskráin er hönnuð fyrir fróðleiksfúst fólk sem vill upplifa eitthvað nýtt og framandi. 

Markhópurinn er fólk sem hefur áhuga á náttúru og menningu og vill bregða undir sig betri fætinum til að skoða nokkur náttúruundur sem verða á vegi okkar. Fólk sem vill kynnast heimamönnum og upplifa þeirra lífsstíl mun njóta sín vel í þessari ferð. Hópurinn verður að hámarki 13 manns.

Ferðaþjónusta er ört vaxandi í Kirgistan og landið dregur að sér ferðamenn sem vilja uppgötva náttúruna og sögu fólksins sem byggir landið. Kirgistan er talið stöðugt land fyrir ferðamann og pólitísk vandamál ekki til staðar um þessar mundir. Smáglæpir og þjófnaður eiga á sér stað þar eins og víðast hvar annars staðar.

Gistingin sem boðið er upp á er af ýmsum toga. Í höfuðborginni er gist á 4ra stjörnu hóteli með loftkælingu. Annars er gist á hótelum og gistiheimilum en auk þess verður gist tvær nætur í Yurt hirðingjatjöldum.

Nokkrar gönguferðir verða í boði sem geta verið allt frá 2 km upp í 12 km, en lengsti göngudagurinn er líka valkvæður. 

Búast má við að við leggjum af velli um 1600 km af akstri í ferðinni. Kirgistan hefur verið hluti af ýmsum menningarsvæðum og stórveldum. Landið var hluti af Silkiveginum og öðrum verslunarleiðum um Mið-Asíu. Vegir silkileiðarinnar fornu eru allir að fá andlitslyftingu undir verkefninu „Belti og braut" sem er stórtækt samgöngu- og viðskiptaverkefni kínverskra stjórnvalda. Í tengslulm við þetta hafa vegaframkvæmdir staðið yfir í þrjú ár í Kirgistan á þeim að vera lokið árið 2029. Sumsstaðar eru vegirnir tilbúnir en vegavinna og brúarframkvæmdir í gangi á öðrum stöðum. 

Sjá má nánar í ferðlýsingunni fyrir hvern dag fyrir sig hvað má búast við af göngumog akstri á hverjum degi.

Hópurinn verður saman í einum bíl af gerðinni Sprinter og svo verður annar bíll sem fylgir hópnum sem geymir farangurinn.

Stuttur pistill um Kirgistan

Pistill um menningararf í Kirgistan 

Kyrgyz Adventur Travel, ferðaskipuleggjandi í Kirgistan, er þarlendur samstarfsaðili.

Fararstjórn

Fararstjóri er Ágústa Sigrún Ágústsdóttir.

Hún hefur mannauðsstjórnun og markþjálfun að aðalstarfi en rætur hennar eru í söng og fararstjórn sem hún sinnir jafnhliða öðrum störfum. 

Ágústa er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu og Slóveníu yfir 20 ár. Hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður á Íslandi fyrir ítölsku- og enskumælandi ferðamönnum um Ísland. Hún kannar nú nýjar slóðir. 

Ágústa heldur úti ferðabloggi undir nafninu Flandrr ferðamiðstöð þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is

Greiðsluskilmálar

Staðfestingagjald að upphæð kr. 100.000 tryggir bókun í ferð og er óafturkræft nema ef ferð er felld niður.
Greiðsla nr. 2 er innt af hendi 10-12 vikum fyrir brottför og nemur hún helmingi af eftirstöðvum
Greiðsla nr. 3 er lokagreiðsla og er innt af hendi 7-8 vikum fyrir brottför.

Athugið:

Lágmarksfjöldi í ferð er 10 manns.

Ferðalýsing

  • 26.05

    Ferðadagur

    Flogið er í með Icelandair til Brussel kl. 07:35 um morguninn og þaðan áfram til Istanbúl með Turkish Airlines. Þriðji leggurinn er frá Istanbúl til Manas flugvallar í Bishkek, höfuðborgar Kirgistan. Lent er kl. 04:30 að morgni næsta dags en þá er klukkan 22:30 að íslenskum tíma. 

  • 27/5

    Bishkek höfuðborgin - borgarferð

    Við lendingu í Bishkek bíða okkur rútur á flugvellinum en um 40 km eru frá flugvellinum til höfuðborgarinnar.

    Við innritum okkur á hótel Plaza, sem er 4ra stjörnu hótel og hvílum okkur eftir flugin. Eftir hádegið er farið í borgarferð þar sem heimsækjum Ala-Too torgið sem er hjarta borgarinnar og  þar sem ríkissögusafnið er staðsett.

    Bishkek  er þekkt sem grænasta borgin í Mið-Asíu, þökk sé ótal görðum og göngustígum sem gera borgina að frábærum stað til að búa í.

    Við heimsækjum einnig hinn fræga Osh bazar markað en um leið og stigið er inn á markaðinn hverfum við inn í austurlenska stemningu með fjölda fólks og mikla fjölbreytni í vörum og litagleði.

    Um kvöldið borðum við á skemmtilegum veitingastað í borginni þar sem við fáum að smakka dýrindis kirgiska þjóðarrétti. 

    Gist á Plaza hótel um nóttina. https://www.plazahotel.kg/ru/ 

  • 28/5

    Þjóðgarðurinn Ala Archa

    Um morguninn ökum við til þjóðgarðsins Ala Archa sem er í um 40 km fjarlægð frá höfuðborginni. Við skoðum okkur um á þessum fallega stað og virðum fyrir okkur snævi þakta fjallstinda, á og læki með fallega fjallasýn. Við kaupum okkur nesti á leiðinni og verjum bróðurpartinum af deginum á þessum fallega stað. Einnig er möguleiki á að dvelja áfram í Bishkek.

    Þegar komið er inn í garðinn verða tvær útfærslur af gönguferðum í boði.  Allir Það ganga saman fyrstu 2 km af leiðinni og svo halda þeir sem vilja lengri göngu áfram með leiðsögumanni og fara hina svokölluðu árleið.

    1) Létt ganga, ca. 4 km á malbikuðum göngustíg. Mjög lítil hækkun. Hægt er að rölta um svæðið og njóta þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða.

    2) 12 km ganga eftir blönduðum stígum. Hækkun ca. 250 m. Ætlaður göngutími er ca. 3,5 klst.

    Borðað á fallegum veitingastað í borginni um kvöldið og áfram gist á Plaza hotel.

    Akstur: ca 35 km. hvora leið

  • 29/5

    Burana og Chon Kemin þorpið

    Eftir morgunverð skráum við okkur út af hótelinu en búast má við um 200 km akstri yfir daginn. Fyrsti áfangastaður okkar er heimsókn í Burana-turninn sem er forn bænaturn í Chuy-dalnum. Hann er staðsettur um 80 km frá höfuðborginni, nálægt borginni Tokmok. Turninn varðveitir muni úr grafreitum, kastalarústir og þrjú  grafhýsi. Þetta er allt sem eftir stendur af hinni fornu Balasagyn-borg sem var stofnuð af Karakhanidunum í lok níundu aldar.

    Hádegisverð borðum við hjá kirgiskri fjölskyldu á svæðinu en höldum svo áfram að Chon Kemin-gljúfrinu er þar er mikil náttúrufegurð og fjölbreytt dýra og- plöntulíf. Við göngum upp að fallegum útsýnisstað þar sem líta má víðáttumikla fjallasýn og er hækkun ca. 200 m.
    Þeir sem vilja geta farið fetið á hestbaki (ekki innifalið).

    Gist er á gistiheimilinu Jekshen og þar er kvöldverður.

    Akstur ca. 170 km yfir daginn.

    https://maps.app.goo.gl/dZBK9wxN1GekFGCa9


  • 30/5

    Bærinn Kyzyl Tuu, arnarveiðar í Bokonbaevo og Ton

    Í dag er ferðinni heitið að Yssyk Kul vatninu sem er annað stærsta fjallavatn í heimi.  Vatnið er svo sannarlega stórt og við munum verja næstu dögum víðsvegar í kringum vatnið. Við heimsækjum fjölskyldu í þorpinu Bokonbaevo sem fræðir og sýnir okkur gerð hirðingjatjalda og við fáum að reyna okkur við að reisa eitt slíkt.

    Næst er ferðinni heitið til Bokonbaevo, þar sem við fáum að fylgjast með örnum sem sérstaklega eru þjálfaðir fyrir veiðar, en arnarveiði er ein af þjóðarhefðum Kirgisa. Við  hittum fyrir arnaveiðimann með fuglinn sinn og fáum að fylgjast með aðferðum sem notaðar eru við veiðarnar.

    Við fáum hádegisverð í hirðingjataldi (yurt) hjá fjölskyldu sem rekur veitingastað þar.

    Við höldum svo ferðinni áfram til bæjarins Ton sem stendur við vatnið þar sem við gistum í hirðingjatjaldi í Elestet tjaldbúðunum. Þar er hægt að slaka á og fá sér sundsprett í vatninu. 

    Kvöldmatur í tjaldbúðunum

    Akstur ca. 180 km yfir daginn.

    https://elestet-issykkul.com/

  • 31/5

    Ton– Skazka og Jety Oghuz gljúfrið

    Við tökum því rólega um morguninn, hægt er að fá sér göngutúr um þorpið Ton eða meðfram vatninu. Þaðan höldum við inn í hið stórkostlega Skazka gljúfur þar sem finna má ótrúlegar klettamyndanir en gljúfur þessi eru oft kölluð ævintýragljúfrin. Stutt ganga um gljúfrið gæti verið um 3 km en nauðsynlegt er að vera með skó með góðu gripi.

    Við höldum ferðinni áfram til Jety Oghuz gljúfursins sem er annar fallegur staður með klettamyndanir og landslag sem kallað hefur verið „Sjö nautshöfuð“. Steinninn „broken heart“ varðar innganginn að gljúfrinu á sérstakan og rómantískan hátt. 

    Við borðum í hirðingjatjaldi í glúfrinu en höldum svo áfram í næturstað okkar Eco Village þar sem við gistum í næstu tvær nætur. Þar er boðið upp á ýmsa dægradvöl fyrir þá sem vilja, þar er hægt að fá leigð hjól, fara í styttri göngur og sauna.

    Akstur ca. 150 km yfir daginn.

    https://www.instagram.com/ecovillage_lodge/

  • 1/6

    Karakol bærinn

    Eftir morgunverð heimsækjum við borgina Karakol og skoðum þar fræg kennileiti. Karakol er fjórða stærsta borgin í Kirgistan, en ásýndar er hún frekar þorpsleg þar sem tíminn líður hægt og eins og hann hafi staðnað í Sovét-tímanum.

    Við heimsækjum Dungan moskuna, einstaka byggingu sem líkist kínverskri pagóðu. 

    Við höldum áfram til rétttrúnaðarkirkju hinnar heilögu þrenningar, sem trékirkja sem byggð er án þess að nota einn einasta nagla. 

    Í hádeginu förum við til fjölskyldu af Dungan uppruna þar sem við fáum hádegisverð en fáum líka kennslu í að gera sérstakar Dungan núðlur.

    Við förum aftur á gistiheimilið, kannski með viðkomu í minjagripaverslun en eftirmiðdagur og kvöldið er frjálst. Kvöldverður á gistiheimilinu.

    Akstur ca. 25 km hvora leið.

  • 2/6

    Jyrgalan dalur

    Eftir morgunverð er ekið um fallega leið inn í hinn afskekkta Jyrgalan dal. Vegurinn liggur um fjallshlíðar og blómlega dali í gegnum lítil þorp sem bjóða upp á skemmtilegt myndefni. Bærinn sem við dveljum í er gamall námubær sem hefur verið breytt í þorp sem þjónar ferðalöngum.

    Hádegisverður er á gistiheimilinu en eftirmiðdagurinn er frjáls og um að gera að nota tækifærið og fara í stutta göngu, t.d. upp á fossi sem er í um 4 km fjarlægð en hækkun er um 200 m. Einnig er möguleiki að fara þessa sömu leið á hestbaki með leiðsögumanni. Eins má bara rölta um bæinn og kynna sér hvernig þorpsbúar búa.

    Gist á Beymaral gistiheimilinu eða svipuðu. 

    Akstur ca. 85 km yfir daginn.

    https://maps.app.goo.gl/B2nEVCAMVj6WWGDPA

  • 3/6

    Semenovka glúfrið og Cholpon Ata

    Í dag er ferðinni heitið inn í fallegt glúfur þar sem ætlunin er að fara í göngu upp að fjallavatninu Semenovka sem er talinn einn fallegasti staðurinn við Issyk-Kul vatnið. Þar göngum við framhjá furutrjám og grænum fjallshlíðum og heyrum vatnsniðinn í ánum. Málsverður verður í „picnic“ stíl þegar á leiðarenda er komið.

    Ganga dagsins: Meðalerfið, nokkur hækkun til að byrja með en svo frekar létt. Lengd: 10 km, 500 m hækkun. Tími: 3-4 klst. Lagt af stað úr 2.100 m hæð og endað í 2.600 m hæð.

    Að göngu lokinni förum við til bæjarins Cholpon Ata sem er þekktur sumarleyfisstaður við Issyk-Kul vatnið. Hér áður fyrr fóru vagnar hér í gegn á Silkileiðinni en í dag koma hingað ferðamenn hvaðanæva að úr löndum fyrrum Sovétríkjanna (CIS) til Cholpon-Ata. Hér eru hreinar strendur og tært vatn. 

    Kvöldverður og gisting á Olympi hótelinu.

    Akstur ca. 205 km yfir daginn

    https://olimphotelkg.com/

  • 4/6

    Cholpon Ata - Kochkor – og Son Kul fjallavatnið

    Við byrjum daginn á að skoða safn úti undir berum himni sem er á stað þar sem fornar steinaristur fundust. Eftir það keyrum við til bæjarins Kochkor þar sem við kynnumst heimafólki og þeirra lífsháttum. Hér gefst tækifæri til að kynnast listinni við að framleiða hefðbundin filtteppi, sem kallast "Shiyrdak" og "Ala Kiiiz". Aðferðin minnir á ullarþæfingu og afurðin er viðurkennd af UNESCO minjaskrá sem óáþreifanlegur menningararfur.

    Blogg um kirgisku filtteppin: https://www.flandrr.is/post/kirgistan-menningararfur

    Eftir þessa fræðslu liggur leiðin upp í 3.400 m hæð yfir Moldo Ashu fjallaskarðið. Þaðan komum við niður að Son Kul fjallavatninu sem stendur í i um 3.000 m hæð y.s. Við dveljum hér í Yurt tjaldbúðum við vatnið þar sem við njótum gestrisni hirðingjanna, kynnumst lífsstíl þeirra og siðum. 

    Kvöldverður i Bayish tjaldbúðunum þar sem verður einnig gist. Sameiginleg salerni eru í sér aðstöðu, útivið.

    Akstur ca. 265 km yfir daginn

    https://maps.app.goo.gl/oWNtMe9DvB1VSLM4A

  • 5/6

    Kochkor og höfuðborgin Bishkek

    Við byrjum daginn á að fylgjast með Kok-boru hestasýningu sem er þjóðaríþrótt og er einskonar pólo á hestbaki.

    Við búum okkur til brottfarar og ökum þessa fallegu leið yfir fjallaskörð í átt að höfuðborginni.

    Við stoppum í bænum Kochkor þar sem við fáum hádegisverð hjá fjölskyldu sem þar býr.

    Búast má við tæplega 350 km akstri í dag. Þegar komið er til Bishkek innritum við okkur á Plaza hótelið en um kvöldið borðum við saman kvöldverð.

    Akstur ca. 350 km yfir daginn

    https://www.plazahotel.kg/en/

  • 6/6

    Frjáls dagur í Bishkek og heimferð

    Frjáls dagur en mælt er með að heimsækja söfn borgarinnar, svo sem þjóðarsafnið eða listasafnið. Einnig er tækifæri til að fara á markaðinn og gera góð kaup eða bara taka því rólega í borginni. 

    Hópurinn borðar saman kveðjukvöldverð en brottför á flugvöllinn er rétt fyrir miðnætti, því flugtak til Istanbúl er kl. 02:25.

  • 7/6

    Heimferð

    Flogið til Istanbul kl. 2.25, þaðan til Brussel og frá Brussel til Keflavíkur kl. 13.50.

    Lent er í Keflavík kl. 15.15

Innifalið

  • Flogið er með Icelandair frá Íslandi til Brussel og þaðan áfram með Turkish Airlines. Sama flugleið til baka.
  • Gisting með morgunverði í átta nætur á hóteli/gistiheimilum og tvær nætur í Yurt tjöldum.
  • Ferðast er á þægilegri rútu með loftkælingu. (Farangurr hópsins verður í öðrum bíl).
  • Reyndur bílstjóri fylgir hópnum allan tímann.
  • Enskumælandi staðarleiðsögumaður allan tímann og íslenskur fararstjóri.
  • Allt sem talið er upp í ferðalýsingu, nema annað sé tekið fram.
  • Fullt fæði allan tímann, nema tveir hádegisverðir.
  • Einn líter af vatni á hverjum degi.

Ekki innifalið

  • Þjórfé.
  • Matur um borð í flugvélum á leið til og frá Kirgistan - matur var innifalinn síðast hjá Turkish airlines, þarf að kanna þegar flugið er komið.
  • Áfengir drykkir.
  • Valkvæð dægradvöl og annað sem sérstaklega er tekið fram að sé ekki innifalið í ferðalýsingu.

Spurt og svarað

Er mikið um göngur í þessari ferð?

Í þessari ferð eru nokkrar göngur, með mismunandi erfiðleikastigi. Því er gott að hafa með góða gönguskó eða grófa strigaskó með gripi