Ferðatilhögun
Suður-Afríka er gjarnan kölluð „allur heimurinn í einu landi“, og það ekki af ástæðulausu. Þetta hlýlega og fjölmenningarlega samfélag hefur margt til að bera, einstakt dýralíf, heimsminjastaðir og ólík vistkerfi sem eru engu lík.
Eitt orð fangar þetta allt: fjölbreytileiki.
Þegar veturinn heldur norðurhveli í sínum köldu greipum, býður suðrið upp á sól, hlýju og ævintýri. Hitastigið er þægilegt, á bilinu 25–35°C á þessum árstíma, sem er kærkomin hvíld frá dimmu skammdeginu.
Ferðin hefst í Durban við Indlandshafið, þar sem strandir og menning suðurhluta Afríku taka á móti okkur. Við leggjum af stað í gegnum fjölbreytt landslag og náttúruperlur áleiðis til Lesótó, sem við heimsækjum í einn dag. Hér er einstakt landslag að finna og menningin allt öðruvísi en við þekkjum.
Í ferðinni upplifum við fjölbreytt dýralíf; við leitum að hinum svokölluðu Stóru fimm (Big Five) ljóni, hlébarða, nashyrningi, fíl og vatnabuffaló og skoðum flóðhesta, krókódíla og mörgæsir í sínu náttúrulega umhverfi.
Ferðinni lýkur í Höfðaborg, þar sem við njótum óviðjafnanlegrar náttúrufegurðar við Taffafjall, upplifum áhrifaríka sögu Suður-Afríku og kynnumst arfleifð Nelson Mandela með heimsókn á sögustaði eins og Robben-eyju og á heimili hans í Durban.
Markhópur þessar ferðar er forvitið fólk sem vill kynnast Suður-Afríku með djúpri tengingu við land og þjóð og með ævintýri að leiðarljósi.
Ferðin er farin á vegum Fiðrildaferða sem eru með ferðina í sölu og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðaskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu. Sure Voyager Travel er samstarfsaðlinn í Suður-Afríku sem hefur veg og vanda að skipulagningunni
Ferðatímabilið er 3. – 18. febrúar 2026. Ferðast er í rúmgóðri 32ja sæta rútu, en hópurinn telur einungis 16 manns. Hótelin eru öll þriggja stjörnu, vel staðsett og með loftkælingu.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara, ef þörf krefur, vegna óviðráðanlegra atvika.
Dagskrá
*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar/innsláttarvillur
Brottför frá Keflavík með Icelandair seinni part dags kl. 15:25 og millilent í Istanbúl kl. 23:55.
Flogið með Turkish Airlines til Suður-Afríku kl. 02:05. Vélin lendir í Jóhannesarborg og þar er stutt stopp áður en haldið er áfram með sömu vél til lokaáfangastaðarins sem er King Shaka flugvöllurinn í Durban þar sem lent er kl. 13:30 þann 4. febrúar.
Fyrstu nóttina er gist á Protea Hotel by Marriott Durban Umhlanga
Umhlanga Rocks er líflegur strandbær með fjöruga þorpsstemningu, þar er mikið af verslunum og veitingastöðum sem liggja við Promenade göngustíginn. Hann liggur meðfram röð af glæsilegum hótelum, sjávarveitingastöðum og hinum fræga vita og bryggjunni.
Morgunverður innifalinn.
Við leggjum af stað snemma þann 5. apríl til Lucia vatnsins og Hluhluwe-Imfolozi þjóðgarðsins Á leiðinni þangað er stoppað við St. Lucia stöðuvatnið sem er hluti af heimsminjasvæðinu iSimangaliso og stærsta ósavistkerfi Afríku. Þar förum við í 1½ klukkustundar siglingu um vatnið og leitum uppi flóðhesta og krókódíla í sínu náttúrulega umhverfi.
Eftir siglinguna keyrum við á hótel Anew Hluhluwe þar sem gist verður næstu þrjár næturnar https://anewhotels.com/hotels/lodge-hluhluwe/
Þaðan gerum við daglega út í skipulagða dýraskoðunarferð (game drive) í þjóðgarðinum. Þetta eru um 3ja tíma ferðir og eru leiddar af reyndum leiðsögumönnum sem þekkja svæðið og dýralífið vel.
Þjóðgarðurinn er elsti þjóðgarður Suður-Afríku og þekktur fyrir að hafa bjargað hvíta nashyrningnum frá útrýmingu. Á svæðinu má auk þess hinar fjórar af „Big Five“ tegundunum, ljón, fíla, hlébarða og buffalo, en þjóðgarðurinn er einn af fáum þjóðgörðum í Suður-Afríku þar sem öll fimm „Big Five“ dýrin eru til staðar. Auðvitað sjáum við fjölmargar aðrar dýrategundir eins og gíraffa, sebrahesta, antilópur og fleira.
Á leiðinni til Durban þann 8. febrúar gegnum bylgjótt og grænt landslag Midlands-héraðsins áum við á táknrænum stað þar Nelson Mandela var handtekinn í lestinni á leiðinni milli Durban og Jóhannesarborgar. Þess er minnst með listaverki á handtökustað Mandela. Við fáum tíma til virða fyrir okkur staðinn og safnið í tengslum við hann.
Morgun- og kvöldverður innifalinn alla dagana, en ekki hádegisverður.
Við komum til Durban eftir upplifunina í þjóðgarðinum og tökum kvöldinu rólega. Gist verður í tvær nætur á sama hóteli og fyrstu nóttina við komu til landsins, Protea Umhlanga hotel.
Morgunverður innifalinn.
Þennan dag sökkvum við okkur inn í fjölbreytta menningu og sögu Durban-borgar. Ræturnar liggja í einum af sterkustu ættum allra afrískra þjóðflokka, Zúlú. Nýlendumenningin og bresk áhrif eru áberandi því borgin varð þekkt sem „síðasti breski útibærinn“.
Við hefjum daginn á heimsókn í KwaMashu, eitt þekktasta „township“ (fátækrahverfi) í Suður-Afríku. Þar fáum við innsýn í daglegt líf íbúa og kynnumst samfélagsandanum sem hefur mótast af lífsbaráttunni og samkennd íbúa.
Næsti viðkomustaður er heimili Mahatma Gandhi, þar sem hann bjó á meðan hann starfaði í Suður-Afríku. Þar mótaðist friðarstefna hans og borgaraleg óhlýðni sem átti eftir að hafa áhrif á heimssöguna. Í Durban er ennþá stærsta indverska samfélagið í einni borg utan Indlands.
Næst liggur leið okkar á Victoria markaðinn þar sem finna má alls kyns handverk, indversk krydd, fatnað og minjagripi. Þar verður tími til að rölta um, skoða og njóta andrúmsloftsins.
Við kíkjum einnig á Zúlú-jurtamarkað, þar sem lækningajurtir og töfralyf eru enn stór hluti af daglegu lífi. Þar má bragða á lifandi arfleifð og fornum siðum Zúlúmenningar.
Dagurinn endar með götubita smakki þar sem við brögðum á ekta "bunny chow", sem er holaður brauðhleifur fylltur með með karrírétti og algengur götubiti í Durban. Þetta er bragðmikil og skemmtileg matarupplifun.
Morgunverður og götubiti innifalinn.
Við kveðjum Durban í bili og ökum inn í gróðursælt og hrífandi landslag Drakensberg-fjallanna og gistum á Premier Resort Sani Pass næstu tvær næturnar.
https://www.premierhotels.co.za/sani-pass
Huggulegt fjallahótel sem býður upp á rólegt andrúmsloft, stórbrotið útsýni og ferskt fjallaloft. Hér njótum við kvöldsins og hvílum okkur fyrir viðburðaríkan dag framundan.
Morgunverður innifalinn.
Í dag förum við í eina af mögnuðustu dagsferðum ferðalagsins – leiðangur upp Sani Pass, eitt ævintýralegasta fjallaskarð Suður-Afríku! Með leiðsögn heimamanna fikrum við okkur upp fjallvegi í sérútbúnum 4x4 farartækjum.
Við förum upp í 2.874 metra hæð yfir sjávarmáli, þar sem andrúmsloftið er tærara, útsýnið ótrúlegt og andinn frjáls.
Lesótó er fjalllent landlukt konungsríki sem er algjörlega umkringt Suður-Afríku, með einstaka menningu og landslag sem skapar skýra andstæðu við láglendi nágrannalandsins. Þegar upp er komið stoppum við í hefðbundnu þorpi í Lesótó, þar sem við fáum innsýn í líf og menningu Basotho-fólksins. Einnig gefst kostur á að heimsækja Sani Top Church sem stendur 2.800–2.900 m.yfir sjávarmáli.
Ferðin endar með í hádegismat og drykkjum á "The Highest Pub in Africa", þar sem þú getur borðað, skálað og horft yfir stórkostlegt landslag á mörkum himins og jarðar.
Morgunmatur og kvöldverður innifalinn.
Leiðin liggur á flugvöllinn í Durban þar sem við tökum innanlandsflug til Höfðaborgar.
Við munum stoppa við Reichenau trúboðamiðstöðina, þar sem farið verður í leiðsögn um Trappista-kirkjuna og gömlu hveitimylluna, sem gegnir nú hlutverki gistiheimilis. Þessi sögufrægi staður í KwaZulu-Natal geymir ríkulega menningararfleifð og gefur innsýn í líf og starf trúboða á svæðinu.
Við stoppum einnig í Bulwer, þar sem við heimsækjum Marutswa-skóginn. Reikna má með um 1 klst. og 15 mín. göngu og kynningu, undir leiðsögn leiðsögumanns sem mun fræða okkur um einstaka náttúrufegurð svæðisins, fuglalíf og gróðurfar.
Komum á King Shaka alþjóðaflugvöllinn um kl. 15:00, þaðan sem við tökum flug til Höfðaborgar um kl. 16:30.
Við gistum á City Lodge V&A Waterfront hotel í Höfðaborg næstu 5 nætur.
https://citylodgehotels.com/our-hotels/City%20Lodge%20Hotel/86
Við verðum vel staðsett við Waterfront-svæðið – í göngufæri við verslanir, veitingastaði og líflegt andrúmsloft þar sem alltaf er eitthvað í gangi.
Morgunverður innifalinn.
Við fáum fylgd að Nelson Mandela Gateway til Robben-eyjar. Þar stígum við um borð í ferju sem flytur okkur út á eyjuna.
Þegar þangað er komið mun taka á móti okkur fyrrverandi fangi, sem leiðir okkur í gegnum áhrifaríka og persónulega ferð um eyjuna og sögu hennar, en algengt er að fyrrverandi fangar sjái um leiðsögn á eyjunni.
Á meðan á heimsókninni stendur munum við ferðast um eyjuna með rútu, áður en við heimsækjum fangaklefa Nelson Mandela.
Morgunverður innifalinn.
Í dag eigum við fallegan bragðlaukadag í vændum á vínræktarsvæðum Suður-Afríku, umlukin fjöllum og vínekrum. Fyrsta stopp dagsins verður í sögufræga bænum Stellenbosch, þar sem við förum í stutta gönguferð um miðbæinn og skoðum fallega enduruppgerðar byggingar í Cape Dutch-stíl.
Að því loknu heimsækjum við hinar fallegu sveitir Franschhoek. Við lítum inn í minningarmiðstöð Húgenotta sem voru franskir mótmælendur sem flúðu trúarofsóknir í Frakklandi og áttu stóran þátt í að móta samfélag og vínmenningu í Suður-Afríku, einkum í Franschhoek.
Við heimsækjum síðan vínekrusvæði, þar sem við lærum um vínframleiðsluferlið og fáum að smakka úrval vína og bragða á dýrindis ostum, allt saman í stórbrotnu umhverfi með fjöllin í Franschhoek sem bakgrunn.
Morgunverður innifalinn.
Í dag er skoðunarferð um Höfðaborg. Fyrsta stopp dagsins er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar, Table Mountain eða Taffafjall. Við förum upp með kláfi og njótum stórkostlegs útsýnis yfir allan skagann, svo langt sem augað eygir.
Að því loknu heimsækjum við helstu byggingar og svæði miðborgarinnar, þar á meðal þinghús Suður-Afríku og Company’s Gardens, sögufrægan almenningsgarð.
Malay Quarter / Bo-Kaap er líflegt og sögufrægt hverfi í miðri Höfðaborg sem gefur innsýn í sögu þrælahalds, trúfrelsis og fjölbreyttrar menningararfleifðar í Suður-Afríku og hefur sterka tengingu við múslimska og malaíska samfélagið. Þar lítum við inn og borðum saman hádegisverð.
Morgunverður og hádegisverður innifalinn.
Stórbrotinn dagur framundan í rútuferð sem liggur í gegnum Seapoint og Camps Bay, eftir Victoria Road, þar sem við njótum útsýnis yfir tignarlega Tólf postula fjallgarðinn. Við fylgjum þessari stórkostlegu strandleið áfram að hinu víðfræga Chapman's Peak Drive, sem liðast meðfram björtum klettum og hafinu.
Við endum förina við Cape Point, þar sem Atlantshaf og Indlandshaf mætast. Þar rísa stórbrotnar klettabrúnir yfir úfnu hafi og útsýnið frá vitanum ofan á hásléttunni er engu líkt. Cape Point er ekki aðeins jarðfræðilegt undur, heldur einnig táknrænn staður sem markar suðurenda meginlandsins – kraftmikill og kyrrlátur í senn.
Á heimleiðinni stoppum við í sjávarbænum Simon’s Town og Boulders Beach, þar sem heimkynni afrísku mörgæsarinnar eru. Þar sjáum við þær í sínu náttúrulega umhverfi meðal gróðurs og granít kletta.
Eftir það njótum við útsýnisins meðfram suðurströndinni og keyrum í gegnum Kalk Bay, sem er sjarmerandi sjávarþorp. Áfram höldum við um Muizenberg, sem er þekkt fyrir breiðar sandstrendur og litríkar baðhúsaklefa.
Við ljúkum þessari einstöku og fjölbreyttu ferð okkar um Suður-Afríku með matarupplifun. Á veitingastaðnum GOLD fáum við að njóta tónlistar og fjölbreyttra rétta hvaðanæva úr Afríku í lifandi umhverfi – og jafnvel læra að tromma á afrísk hljóðfæri, líkt og innfæddir!
Morgunverður og kvöldverður innifalinn
17.febrúar
Flogið frá Höfðaborg til Istanbúl með Turkish airlines kl. 17:15 (TK045).
18. febrúar
Við lendum í Istanbúl kl. 05:35 að staðartíma og höldum áfram með Icelandair kl. 08:05 (FI901).
Í Keflavík lendum við kl. 11:00.
Innifalið/Ekki innifalið
Innifalið
- Flug með Icelandair og Turkish Airlines til Durban og heim frá Höfðaborg.
- Innanlandsflug frá Durban til Höfðaborgar.
- Loftkæld 32ja sæta rúta með bílstjóra.
- 4x4 farartæki þann dag sem farið er til Lesótó
- Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu.
- Gisting á fjórum þriggja stjörnu hótelum í 13 nætur. Öll með loftkælingu á herbergjum.
- Protea Hotel by Marriott Durban Umhlanga - 1 nótt + 2 nætur = 3 nætur með morgunverði
- Anew Hluhluwe hotel – 3 nætur með morgunverði og kvöldverði
- Kvöldverður eftirtalda daga: 5.,6.,7.,9. og 16. febrúar og hádegisverður 15. febrúar.
- Enskumælandi staðarleiðsögn.
- Íslensk fararstjórn.
- Kynningar og undirbúningsfundur með fararstjóra og ferðaskipuleggjanda í Suður-Afríku fyrir brottför.
Ekki innifalið
- Þjórfé
- Ferðatryggingar
- Málsverðir umfram þá sem taldir eru upp í ferðalýsingu
FAQs
Answer 01