Tekið á móti dauðanum í Oaxaca
Dagur hinna dauðu er aðalhátíð Mexíkó búa og er ríkur þáttur í menningu landsins. Þó dagurinn sé haldinn hátíðlegur allstaðar í Mexíkó, þá er Oaxaca sé staðurinn þar sem hátíðin er hvað mest áberandi. Hátíðin er lifandi hefð sem er ofin inn í daglegt líf, fjölskyldutengsl og sjálfsmynd mexíkóa.
Í Oaxaca er dauðinn ekki þögn, hann er minning, hlátur, tár og ilmur af appelsínugulum blómum og heitu súkkulaði sem fyllir kvöldloftið. Þegar Día de los Muertos nálgast breytist borgin og nærliggjandi þorp og hátíðin tekur yfir.
Fornar rætur sem lifa enn
Uppruni Día de los Muertos í Oaxaca liggur djúpt í menningu frumbyggja svæðisins, einkum Zapoteca- og Mixteca-fólksins. Löngu fyrir komu Spánverja litu þessar þjóðir á dauðann sem umbreytingu en ekki sem endalok – ferðalag sálinnar yfir í annan heim. Sambandið milli lifenda og látinna slitnaði ekki við dauðann; það breytti einfaldlega um form.
Á vissum tímum ársins var þannig talið að sálir forfeðranna gætu snúið aftu og verið nærri ástvinum sínum. Þessar hugmyndir lifa enn sterkt í Oaxaca og eru grunnurinn að því hvernig Día de los Muertos er haldin hátíðleg í dag.
Þegar kaþólskar hefðir bárust með landvinningum Spánverja á 16. öld runnu þær saman við þessa fornu heimspeki. Allra heilagra messa þann 1. nóvember og og Allra sálna messa þann 2. nóvember sameinuðust frumbyggjasiðum og úr varð einstök blanda.
Velkomin inn!!
Í Oaxaca hefst Día de los Muertos ekki á götum úti, heldur inni á heimilum. Þar eru sett upp altari, ofrendas, með mikilli natni og kærleika. Hvert altari er persónulegt og engin tvö eru eins.
Á þeim má finna ljósmyndir af hinum látnu, kerti, blóm, reykelsi og hluti sem tengdust lífi þeirra. Uppáhaldsmaturinn þeirra fær heiðurssess: pan de muerto, tamales, ávextir, súkkulaði frá Oaxaca og oft mezcal. Hugmyndin er ekki að „færa fórnir“ í trúarlegum skilningi, heldur að bjóða hinn látna velkomin – eins og verið sé að taka á móti gestum sem koma langt að.
Marigold-blómið, cempasúchil, er allsráðandi. Bjarti appelsínuguli liturinn og sterki ilmurinn eiga að leiða sálirnar heim. Blómin mynda stíga, kransa og skreytingar sem tengja heim lifenda og látinna.
Kirkjugarðarnir – hjarta hátíðarinnar
Eitt það áhrifamesta við Día de los Muertos í Oaxaca er stemningin í kirkjugörðunum. Þar ríkir kyrrð – en ekki þögn. Fjölskyldur safnast saman við leiði ástvina sinna, skreyta þau, kveikja kerti og dvelja saman langt fram á kvöld.
Það er talað, hlegið, borðað og jafnvel spilað á hljóðfæri, mariachi tónlistin svífur yfir vötnum og börn hlaupa á milli leiða. Eldri kynslóðir segja sögur af þeim sem farnir eru og því verður dauðinn ekki fjarlægur, heldur hluti af samfélaginu.
Fyrir gesti getur þessi upplifun snert þá djúpt, hún krefst virðingar og opins huga en gefur hinsvegar einstaka innsýn í menningu sem kennir að minningin haldi lífinu áfram. Það getum við öll tengt við þó við séum ekki frá Mexíkó, dauðinn er alheimsfyrirbæri!
Borgin sem lifnar við
Á þessum tíma fyllist Oaxaca-borg af litum og list, götur eru skreyttar, markaðir ilma af kryddum og blómum, listasýningar, tónlist og menningarviðburðir spretta upp víðs vegar. Andlit eru máluð sem calaveras – hauskúpur sem eru ekki ógnvekjandi, heldur frekar sem táknræn mynd.
Hér mætast fortíð og samtíð, handverk, grafík, keramik og textíll endurspegla þemu dauða, minningar og endurfæðingar. Oaxaca nýtir Día de los Muertos ekki til að fegra dauðann, heldur til að horfast í augu við hann – með reisn, húmor og hlýju.
Meira en hátíð – heimspeki
Að upplifa Día de los Muertos í Oaxaca er að kynnast annarri sýn á lífið sjálft. Hér er dauðinn ekki tabú, heldur hluti af samtalinu. Minningin er ekki byrði, heldur brú milli lifenda og dauðra og kynslóða.
Kannski er það þess vegna sem hátíðin snertir svo marga. Hún minnir okkur á að tengslin slitna ekki þegar lífið endar – þau breyta einfaldlega um mynd. Og í Oaxaca, ár eftir ár, er þeim tengslum haldið á lofti með blómum, ljósi, mat og sögum sem lifa áfram.
I ferð Fiðrildaferða til Mexíkó munum við njóta alls þess sem Oaxaca hefur upp á bjóða og upplifa hefðir heimamanna og taka á móti dauðanum og lífinu !
Við hlökkum til að upplifa þessa hátíð með þér!

