Upplifðu töfra Mexíkó á Allraheilagamessu
Töfrar Mexíkó
Ferðin okkar til Oaxaca í Mexíkó er á einum magnaðasta tíma ársins – þegar borgin fyllist af litum, ilmi af blómum, tónlist Mariachi og ævafornum hefðum í tilefni Día de los Muertos.
Þetta er ferð fyrir þau sem vilja upplifa menningu Mexíkó til hins ýtrasta, upplifa með heimafólki og njóta matargerðarlistar og alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Við dveljum á fallegu boutique-hóteli sem er vel staðsett í miðborg Oaxaca og njótum þess að upplifa dagskrá sem Malia hjá Altruvistas og hennar fólk í borginni hefur sett saman af einstakri natni.
Ferðin sameinar þátttöku í degi hinna dauðu, matargerð, listir, handverk, sögu frumbyggja, helgisiði, náttúru og samfélagslegar heimsóknir.
Hvað gerum við?
- Við förum í gönguferð um miðbæ Oaxaca, heimsækjum markaði og skoðum iðandi mannlífið í borginni.
- Við fáum fræðslu um menningu Mexíkó frá staðbundu leiðsögufólki.
- Við heimsækjum fornleifasvæði Monte Albán og Mitla sem geyma merkilegar minjar frá Zapotek tímanum (500 f.Krist).
- Við förum á markaði og upplifum matreiðslunámskeið, kakóhefðir og mezcal-smökkun.
- Við eigum smverustundir með listakonum og samvinnufélögum kvenna á svæðinu.
- Við upplifum einstaka hreinsunarathöfn með curandera lækni.
- Við útbúum altari og undirbúum okkur fyrir Allraheilagamessu ( Día de los Muertos).
- Við tökum þátt í gleðskap og götuhátíð/vöku borgarbúa vegna hátíðarinnar.
- Síðast en ekki síst, njótum við samveru í góðum hópi og sköpum einstakar minningar.
Þau sem vilja framlengja dvölina geta notið strandbæjarins Puerto Escondido sem er í 2,5 klukkutíma fjarlægð frá Oaxaca.
