Magnaða Mexíkó!

10 Dagar

Upplifðu töfra Mexíkó á Allraheilagamessu

  • 25.október til 4.nóvember
  • Ásdís Guðmundsdóttir
  • Staðfestingargjald er kr.100.000 og er óafturkræft
  • 558.000 fyrir mann í tvíbýli, 115.000 aukagjald fyrir einbýli
  • Íslenskur fararstjóri, leiðsögn á ensku

Töfrar Mexíkó

Ferðin okkar til Oaxaca í Mexíkó er á einum magnaðasta tíma ársins – þegar borgin fyllist af litum, ilmi af blómum, tónlist Mariachi og ævafornum hefðum í tilefni Día de los Muertos.

Þetta er ferð fyrir þau sem vilja upplifa menningu Mexíkó til hins ýtrasta, upplifa með heimafólki og njóta matargerðarlistar og alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða.

Við dveljum á fallegu boutique-hóteli sem er vel staðsett í miðborg Oaxaca og njótum þess að upplifa dagskrá sem Malia hjá Altruvistas og hennar fólk í borginni hefur sett saman af einstakri natni.

Ferðin sameinar þátttöku í degi hinna dauðu, matargerð, listir, handverk, sögu frumbyggja, helgisiði, náttúru og samfélagslegar heimsóknir.

Hvað gerum við?

  • Við förum í gönguferð um miðbæ Oaxaca, heimsækjum markaði og skoðum iðandi mannlífið í borginni.
  • Við fáum fræðslu um menningu Mexíkó frá staðbundu leiðsögufólki.
  • Við heimsækjum fornleifasvæði Monte Albán og Mitla sem geyma merkilegar minjar frá Zapotek tímanum (500 f.Krist).
  • Við förum á markaði og upplifum matreiðslunámskeið, kakóhefðir og mezcal-smökkun.
  • Við eigum smverustundir með listakonum og samvinnufélögum kvenna á svæðinu.
  • Við upplifum einstaka hreinsunarathöfn með curandera lækni.
  • Við útbúum altari og undirbúum okkur fyrir Allraheilagamessu ( Día de los Muertos).
  • Við tökum þátt í gleðskap og götuhátíð/vöku borgarbúa vegna hátíðarinnar.
  • Síðast en ekki síst, njótum við samveru í góðum hópi og sköpum einstakar minningar.

Þau sem vilja framlengja dvölina geta notið strandbæjarins Puerto Escondido sem er í 2,5 klukkutíma fjarlægð frá Oaxaca.

Ferðatilhögun

  • 25.október

    Ferðadagur

    Flogið frá Íslandi í gegnum Amsterdam, beint flug til Mexíkó borgar og þaðan til Oaxaca.

    Hentugast er að fljúga til Amsterdam en þaðan er beint flug til Mexíkó borgar með Aeromexico. Þar er bið á velli og svo flogið til Oaxaca og komið þangað um morguninn 26.október.

  • 26.október

    Bienvenido a Mexico!

    Velkomin til Oaxaca!

    Velkomin til Mexíkó!
    Við stefnum á að vea komin eigi síðar en kl. 14:00 þann 26. október á Xoxocotlán alþjóðaflugvöll (OAX), þar sem ferðin hefst formlega.

    15:00 – Innritun á hótel


    17:00 – Kynningarfundur í anddyri hótelsins. Þú hittir staðarleiðsögumanninn Citlali og fararstjóra Fiðrildaferða, Ásdísi Guðmundsdóttur.


    19:00 – Kvöldverður á Restaurante Catedral

    (https://www.restaurantecatedral.com.mx/)

    Kvöldverður innifalinn

  • 27.október

    Borgin könnuð, sögur og menning

    08:00 – Morgunverður

    09:00 – Í dag virkjum öll fimm skynfærin í sögulegri gönguferð um Oaxaca. Við heimsækjum m.a. Zócalo-torgið, Santo Domingo de Guzmán-kirkjuna (glæsilegt dæmi um barokkarkitektúr), fornleifasýningar í svæðissafni Oaxaca og hina frægu 20 de Noviembre og Benito Juárez markaði.

    10:30 – Grasagarðurinn í Oaxaca heimsóttur en þar má finna hundruði plantna sem allar eiga uppruna sinn í Oaxaca og sýna ótrúlega fjölbreytni náttúru svæðisins.

    13:00 – Hádegisverður á El Pochote, þekktum fyrir grænmetisrétti.

    15:00 – Juan de Dios, leiðsögumaður okkar, heldur fræðsluerindi um sögu og menningarlega fjölbreytni Oaxaca, í kjölfarið spurningar og umræður.

    17:00 – Frjáls tími


    Kvöldið er frjálst til að skoða bæinn eða bara slaka á

    Morgunverður og kvöldverður innifalinn

  • 28,október

    Monte Albán & Zapóteka-menning

    08:00 – Morgunverður

    09:00 – Við höldum til Monte Albán, sem er merkilegt fornleifasvæði rétt utan við Oaxaca. Þar kynnumst við einni elstu borg Mesóameríku og fáum að heyra um sögu Zapóteka-menningarinnar.

    13:00 – Hádegisverður á El Mirador del Fortín.

    15:00 – Kakóhefðir Oaxaca hjá Chimalapa Cacao. Við lærum að rista kakó og búa til okkar eigið heitt súkkulaði.

    17:30 – Heimsókn til Alalimon sem hópur listakvenna rekur.

    Að því loknu frjáls tími

    Morgunverður og kvöldverður innifalinn

  • 29.október

    Matargerð og mescal

    08:00 – Morgunverður

    09:00 – Markaðsferð í Xoxocotlán og matreiðslunámskeið með Beatriz Galicia Yunhis. Sameiginlegur hádegisverður eldaður af hópnum!

    15:00 – Hvíld á hóteli.

    17:00 – Fræðsla og smökkun á mezcal með Sósima Olivera – saga frumbyggja og fyrsta mezcal-merki í eigu kvenna.

    Morgunverður og hádegisverður innifalinn

  • 30.
    október

    Etla, forfeður og altari

    07:30 – Morgunverður

    08:30 – Við höldum til Etla, upprunalegrar höfuðborgar Zapóteka þar sem við kynnumst quesillo-ostagerð hjá fjölskyldufyrirtæki.

    Við heimsækjum síðan tianguis-markaðinn og kaupum blóm og fórnir fyrir altarið sem við munum útbúa saman.

    12:00 – Sýnikennsla á Pan de Muerto – hefðbundnu brauði hátíðarinnar.

    13:00 – Hádegisverður á La Villa de Etla – Restaurante Isabel.

    15:00 – Við tökum þátt í temazcal-hreinsunarathöfn með "curandera" lækni, hér er um djúpstæða líkamlega og andlega upplifun að ræða

    19:00 – Heimferð til Oaxaca, við byrjum að undirbúa altarið okkar.

    Morgunverður og hádegisverður innifalinn.

  • 31.október

    Ostur, handverk, mannlíf og altari

    08:00 – Morgunverður

    10:00 – Fræðsla um quesillo-ostagerð.

    12:00 – Frjáls tími – hægt að versla, rölta og setjast á kaffihús og skoða mannlífið eða bara slaka á á hótelbarnum Hægt er að heimsækja einnig handverksverslanir í eigu kvenna en listmunir Mexíkókvenna eru einstakir.

    15:00 – Sameiginleg smíði altaris og blómaskreytinga

    19:00 – För til Atzompa. Kvöldverður á Como en el Pueblo og heimsókn í kirkjugarðinn Panteón de Atzompa.


    23:00 – Heimkoma á hótel.

    Morgunverður og kvöldverður innifalinn

  • 1.nóvember

    Dagur hinna dauðu!

    Dagur hinna dauðu er aldagömul hefð með rætur í menningu frumbyggja Mexíkó. Við skoðum stórbrotin altari sem búið er að útbúa eða njótum þess að slaka á þennan morgun.

    09:00 – Förinni er heitið til San Bartolo Coyotepec, heimsókn í safn alþýðulistar og verkstæði þar sem notaður er svartur leir.

    13:00 – Hádegisverður á Cuilapam de Guerrero – hlaðborð með fjölbreyttum mólé-réttum.

    15:00 – Frjáls tími.

    16:00 – Andlitsmálun og fræðsla um Catrinas.

    20:00 – Nú hefst hin eiginlega veisla þar sem við náum sambandi við framliðna! Comparzas-götuhátíðir og vökunótt með horfnum ættingjum og vinum !

  • 2.nóvember

    Frjáls dagur

    Frjáls dagur í Oaxaca!

    Hægt að njóta mannlífsins, rölta um bæinn og skoða verslanir, fara á kaffihús eða bara slaka á eftir annasama daga.

    18:00 – Við lokum hringnum og deilum upplifunum

    20:00 – Kveðjukvöldverður á Taniperla.

    Morgunverður og kvöldverður innifalinn

  • 3.-4.nóvember

    Hasta luego! Bless Mexíkó!

    Við höldum heim á leið... eða:

    Möguleiki er á því að lengja dvölina um nokkra daga og fara á ströndina við smábæinn Puerto Escondido sem er staðsett á Oaxacan "Emerald Coast", milli Acapulco og Huatulco. Puerto Escondido  er bær sem heldur sínum sérkennum og andrúmslofti mexíkósks fiskimannaþorps.

    Frá Oaxaca til Puerto Escondido er 2,5 til 3 klukkustunda akstur, hægt er að leigja bíl eða fara með rútu eða stórum bíl.


Innifalið

  • Íslensk fararstjórn
  • Leiðsögn (á ensku)
  • Hótel með morgunmat
  • 3 kvöldverðir
  • 2 hádegisverðir
  • Þjórfé
  • Aðgangseyrir í söfn
  • Ferðir
  • Súkkulaðigerðarnámskeið
  • Matreiðslunámskeið
  • Mexcal smökkun
  • Kaffismökkun
  • Andlitsmálun

Ekki innifalið

  • Flug til og frá Mexíkó (aðstoð við bókun, ef óskað er)
  • Ferðamannapassi (4500 krónur)
  • Drykkir
  • Önnur valkvæð afþreying