Upplifðu Perú á einstakan hátt!
Einstök ferð til Perú!
Fiðrildaferðir, í samstarfi við ferðaskipuleggjendurna hjá Lifetime Peru bjóða upp á einstaka ferð til Perú þar sem ævintýri, menning og samfélagsþátttaka fléttast saman.
Gestir upplifa stórbrotna náttúru og einstaka sögu landsins, á sama tíma og þeir kynnast samfélaginu af eigin raun með heimsóknum í skóla og til heimamanna.
Þetta er heillandi ævintýraferð um hjarta Andesfjallanna þar sem saga, menning og stórbrotin náttúra mætast. Við skoðum líflega markaði og heillandi nýlenduborgir, heimsækjum hið töfrandi Machu Picchu, göngum um helgar slóðir Inkanna og kynnumst daglegu lífi íbúa í Andesfjöllum.
Ferðin sameinar menningarupplifun, stórfenglegt landslag, einstaka matargerð og hlýjar móttökur. Þetta er ferð fyrir forvitna ferðalanga sem vilja dýpri tengingu við sögu, náttúru og samfélag – og upplifa Perú með öllum skilningarvitunum.
Ferðin er skipulögð i samstarfi við ferðaskipuleggjendurna hjá Lifetime Peru og Daniel Salazar sem hefur áralanga reynslu af því að bjóða gesti velkomna til heimalands síns.
Dagskrá
Ferðadagur
Lent í Lima snemma morguns ef flogið er frá NY.
Leiðsögumaður og bílstjóri munu bíða hópsins á flugvellinum og aka með okkur á hótelið sem er staðsett í Miraflores-hverfinu (u.þ.b. 50 mínútna akstur).
Innritun á hótel, morgunmatur og hvílum okkur eftir flugið.
Í dag heimsækjum við Larco-safnið, Plaza de Armas og Parque del Amor og endum daginn við Huaca Pucllana píramídasvæðinu þar sem við borðum kvöldverð með útsýni yfir minjasvæðið.
Frábær dagur til að njóta ljúffengrar perúskrar matargerðar.
1 nótt í Lima á boutique-hóteli í Miraflores.
Morgunverður innifalinn.
Eitt af neðangreindum hótelum;
Casa Andina Premium Casa Andina Premium Miraflores | hotel 5 estrellas en Lima
Antigua Miraflores Boutique Hotel Antigua Miraflores
Miraflores Boutique ᐉ MIRAFLORES BOUTIQUE HOTEL ⋆⋆⋆ ( LIMA, PERU ) REAL PHOTOS & GREAT DEALS
Eftir morgunverð ökum við aftur á flugvöllinn í Lima og tökum flug sem leið liggur til Puerto Maldonado.
Reserva Amazónica verður bækistöð okkar í 2 nætur en hér könnum við Amazon regnskóginn.
Starfsfólk Reserva skálans tekur á móti hópnum á flugvellinum í Puerto Maldonado og fer með okkur sem leið liggur að árbakkanum þar sem við tekur 45 mínútna bátsferð inn í hjarta Amazon að Reserva Amazónica svæðinu. Þetta er eina leiðin til að komast á áfangastað, engir vegir!
Á hótelinu verður innritun og svo kynningarfundur um dagskrána á staðnum.
Boðið er upp á ýmsa afþreyingu, þar á meðal heimsókn í Inkaterra Canopy Walkway, brú í 30 metra hæð, þar sem útsýni er yfir Amazon svæðið.
Náttúruskoðun í fylgd með náttúrufræðingi.
Sigling um ána við sólsetur
Einnig er hægt að panta ýmsar heilsu- og slökunarmeðferðir (ekki innifalið).
Athugið: Bátsferðin niður ána hefur takmarkað pláss fyrir farangur og starfsfólk Lodge mælit með því að gestir komi með handfarangurstösku með sér en annan farangur er hægt að geyma á skrifstofu þeirra í bænum.
Eftir hádegisverð förum við í göngu í fylgd náttúrufræðings staðarins sem fræðir okkur um fjölbreytt dýralíf svæðisins.
Hægt að fara í bátsferð seinnipartinn og fylgjast með sólsetrinu í Amazon.
Gisting í 2 nætur í vistvænum skála, Reserva Amazónica, sjá hér: www.inkaterra.com
Um Reserva Amazonica
Um er að ræða vistvænan gististað við bakka ánnar Madre de Dios River, en á svæðinu eru 35 skálar en hönnun þeirra er innblásin af Ese’Eja frumbyggjum sem búa á svæðinu. Boðið er upp á ýmsa afþreyingu, þar á meðal heimsókn í Inkaterra Canopy Walkway, brú í 30 metra hæð, þar sem útsýni er yfir Amazon svæðið. Árið 2013 var Inkaterra valið af National Geographic ferðablaðinu sem einn af 25 bestu vistvænu gististöðum heims. Inkaterra er staðsett við ána og rétt við Tambopata þjóðgarðinn.
Innifalið: Morgunmatur, hádegisverður og kvöldverður
Eftir morgunverð förum við með bát aftur til Puerto Maldonado og tökum flug til Cusco.
Cusco liggur í 3.400 m.hæð yfir sjávarmáli og er fyrrum höfuðborg Inkanna. Þar má finna blandaða menningu og arfleifð Inka og spánverja, lífleg menning er í borginni; Markaðir, listasöfn og auðvitað matargerð!
Nánar um borgina síðar!
Við komu til Cusco ökum við beint til Heilaga dalsins (Sacred Valley) sem liggur í 2.700 metra hæð, þar sem finna má gróðursæla dali og hefðbundin perúsk þorp.
Moray
Við komum við á Moray svæðinu þar sem sjá má röð af hringlaga skálum sem liggja ofan í jörðina eins og hringleikahús. Dýpsti hlutinn er um 30 metra og notuðu Inkar svæðið líklega sem tilraunastöð, hitamunurinn milli efsta og neðsta hluta er um 10-15 gráður, og með þessum tilraunum var hægt að kanna hvernig mismunandi plöntur aðlöguðust mismunandi aðstæðum. Hér er því um stórmerkilegt svæði að ræða sem ber vitni um vísindalega nálgun Inkanna. Hér voru þróaðar ýmsar tegundir af korni og maís.
Salineras
Við skoðum einnig saltnámurnar í Salineras (sal þýðir salt á spænsku) en Salineras er náttúruleg saltuppspretta sem kemur úr fjallinu. Vatnið er leitt í 3.000 til 4.000 litlar laugar, sólin sér um að þurrka þær upp og skilur saltið eftir til að nýta. Hver laug er í eigu einnar fjölskyldu sem sér um sína framleiðslu.
Besta leiðin til að aðlagast hæðarmismun er að byrja ferðina í láglendi Sacred Valley og feta okkur hægt og rólega uppá við!
2 nætur í Sacred Valley á Posadas del Inca Yucay hótelinu (4 stjörnur).
Sonesta Posadas del Inca Yucay
Morgunverður innifalinn.
Eftir morgunverð heimsækjum textílþorpið Chinchero í Sacred Valley en þorpið er í 3.760 metra hæð. Þorpið var byggt upp af Inkum og er talið hafa verið íverustaður konungsins Tupac Inca Yupanaqui. Útsýnið yfir dalinn er stórkostlegt!
Hér skoðum við hefðbundinn vefnað heimafólks en hér er unnið með ull frá lama og alpaka dýrum. Notast er við náttúrulega liti frá plöntum, skordýrum og steinum. Táknin og mynstrin segja sögu um samfélög, náttúruna og heimsmynd heimafólks. Hér má sjá hvernig ullin er unnin, þvegin, lituð og ofin og litadýrðin er ótrúleg!
Við borðum hádegisverð hjá heimafólki þar sem Pachamanca eldunaraðferðin er notuð en þá er maturinn eldaður í jörðinni (Pacha = jörð, mancha = pottur), steinar eru hitaðir í opnum eldi, kjöti, kartöflum, maís og grænmeti er kryddað og pakkað í lauf og sett á steinana. Þá er það þakið mold og látið malla í 1-2 klukkustundir. Sannkölluð veisla fyrir bragðlauka og mataráhugafólk!
(Athugið: hægt er að skipta út sýningu fyrir matreiðslunámskeið með staðbundnum kokki gegn aukagjaldi, USD 60 á mann).
Síðar heimsækjum við Granja Escuela í Yucay þar sem við kynnumst fræðsluverkefnum þeirra og hittum kennara og börn. Hér fáum við tækifæri til að skoða skólann og þau verkefni sem styrkt hafa verið af íslendingum.
Athugið: Eftir Pachamanca-hádegisverð borðum við yfirleitt ekki kvöldverð, nema eitthvað létt og getum fengið okkur snarl og drykk á hótelinu.
Morgunverður og hádegisverður innifalinn.
Eftir morgunmat heimsækjum við bæinn Ollantaytambo en bærinn er við ánna Urubamba og umhverfis það má líta fjöll með snæviþöktum tindum.
Bærinn er þekktur fyrir Ollantaytambo rústirnar, gríðarlega stórt Inka virki með stórum steinum sem greiptir eru í hlíðina. Meðal annars má nefna risastórt sólar hof og prinsessubrunn. Þrátt fyrir aldur bæjarins er enn verið að nota innviði frá Inkatímabilinu.
Við fáum okkur léttan hádegisverð í bænum áður en við tökum lestina til Aguas Calientes (Machu Picchu-bæjarins).
Athugið: Líkt og í Amazon er mælt með að taka með litla tösku fyrir 2 daga / 1 nótt. Annar farangur verður geymdur á hótelinu og sóttur af bílstjóra okkar áður en hann mætir okkur á lestarstöðina daginn eftir.
Þetta auðveldar ferðina til Machu Picchu verulega.
Gisting í eina nótt á Aguas Calientes á El Mapi by Inkaterra (4 stjörnur).
https://www.inkaterra.com/byinkaterra/el-mapi-hotel/the-experience/
Innifalið: Morgunverður og kvöldverður á hótelinu
Nú liggur leiðin til Aguas Calientes eða Machu Picchu fram að hádegi en bærinn ber nafn með rentu (Aguas=vatn - calientes=heitt) þar sem bærinn er þekktur fyrir heitar laugar.
Í miðbænum má finna veitingahús og verslanir og einnig markaðinn Mercado Artesanal með ýmsu litríku handverki.
Meðfram ánni má svo finna Los Jardines de Mandor garða með orkídeum og fuglum. Þar nálægt er Fiðrildahúsið þar sem við verðum auðvitað að koma við!
Mandor er verndarsvæði sem er um 4 km frá bænum, þar má finna gönguleiðir sem liggja í gegnum garða með fjölbreyttum gróðri og blómum, og þar má finna hundruði tegunda af flóru og dýralífi. Um leið lærum við hvernig svæðið vinnur að verndun dýra- og gróðurlífs. Fossinn við enda göngunnar gefur okkur ferskan andblæ!
Við borðum hádegisverð í bænum og fáum leiðsögn um bæinn áður en við tökum lestina til baka til Ollantaytambo.
Þar stígum við upp í rútu og liggur leiðin til Cusco.
Þegar til Cusco er komið, tékkum við okkur inn á boutique-hótelið Abitarre en hér dveljum við í tvær nætur.
Innifalið: Morgunverður
Brottför frá Cusco til Ocongate þar sem við heimsækjum grunnskóla, hittum nemendur og kennara og afhendum gjafir.
Á leiðinni til baka heimsækjum við bæinn Andahuaylillas og 17. aldar kirkjuna San Pedro, sem er þekkt sem „Sixtínska kapella Andesfjalla“.
Við snúum aftur til Cusco síðdegis.
Morgunverður innifalinn.
Í dag könnum við þessa fallegu borg: torg, markaði og Inka- og nýlendubyggingar.
Cusco var eitt sinn höfuðborg Inka veldisins en er nú þekkt fyrir bæði fornleifar og arkítektúr frá spænska nýlendutímanum. Plaza de ARmas er aðaltorgið, Santo Domingo Convent var byggt á toppi Sólahofi inka og ber merki um Inkana enn þann dag í dag.
Við tökum svo síðdegisflug til Arequipa, og verðum komin tímanlega fyrir kvöldverð og stutta göngu um aðaltorgið.
Við gistum á Inicio, 4 stjörnu hótel í Arequipa sem er vel staðsett í miðbænum nálægt aðaltorginu.
Inicio - Hotel Boutique Ariquepay
Morgunverður innifalinn.
Arequipa er höfuðborg nýlendutímabils Perú. Hana umlykja þrjú eldfjöll og þar má finna fjölda bygginga í barokkstíl gerðar úr hvítum eldfjallasteini sem finnst aðallega um þessar slóðir. Þungamiðja borgarinnar er Plaza de Armas, þar sem Basilika dómkirkjan er staðsett.
Við tökum gönguferð um borgina og skoðum Santa Catalina klaustrið, Museo Santuarios Andinos, markaði og torg.
Við njótum þessarar fallegu borgar og frábærrar matargerðar hennar.
Morgunverður innifalinn
Eftir morgunverð er ferðinni heitið til Colca-gljúfursin. Hægt og bítandi liggur leiðin upp í þjóðgarðinn Aguada Blanca þar sem mögulegt er að sjá villtar vicuña-antilópur á sléttunum. Colca Canyon er eitt dýpsta gil heims (2000 m) og ber heiti sitt af ánni Colca. Í gljúfrinu má sjá græna dali og lítil þorp kúra í fjalllendinu þar sem landbúnaður er aðalviðurværi íbúa.
Glúfrið er heimkynni fuglsins Andean Condor sem við munum sjá á morgun.
Við nemum staðar á hæsta fjallaskarði svæðisins í 4.800 m hæð og gæðum á okkur á jurtatei og snarli áður en við höldum niður til bæjarins Chivay.
Áfangastaður okkar er Colca Spa Lodge þar sem við dveljum í tvær nætur.
Morgunverður innifalinn.
Eftir morgunmat förum við að útsýnisstaðnum Cruz del Condor en þangað er 90 mínútna akstur.
Þar fylgjumst við með stórfenglegu flugi kondor fuglanna þar sem þeir svífa um dalinn á heitum loftstraumum sem stíga upp úr gljúfrinu.
Við heimsækjum einnig smábæ í dalnum og fáum innsýn inn í líf heimafólks.
Við snúum aftur á hótelið og njótum þess að slaka á og fara heitu laugarnar (innifalið).
Einnig er hægt að fara í heilsulind sem er á hótelinu en þá þarf að greiða aukagjald og bóka við innritun.
Frjáls morgunn til að slaka á og njóta áður en við ökum til Arequipa en þaða fljúgum til Lima um kvöldið.
Perú kvödd og lagt af stað heim.
Fyrir þá sem vilja framlengja dvölina, aðstoðum við við skipulagningu á því.
Hvað er innifalið?
Innifalið
- Leiðsögn
- Íslensk fararstjórn
- Allar ferðir innanlands, bíll og flug
- 12 nætur á 4 stjörnu hótelum, Amazon-skála og boutique-hótelum
- Allar aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætlun
- Daglegur morgunverður og tilgreindar máltíðir (fullt fæði í Amazon, hefðbundinn hádegisverður í Chinchero, kvöldverður í Machu Picchu)
- Lest og rúta til Machu Picchu
Ekki innifalið
- Flug til og frá Perú
- Ferðatryggingar
- Þjórfé
- Þær máltíðir sem ekki eru tilgreindar í dagskrá
- Eftir að hópur er staðfestur (lágmark 10 manns) skoðum við flugmálin. Þá getur fólk bókað sjálft flug eða í gegnum ferðaskrifstofuna.
Almennt
Ekki er þörf á bólusetningum þegar ferðast er til Perú.
Við munum dvelja í suðurhluta landsins þar sem malaría hefur ekki greinst.
Huga þarf að vörnum gegn moskítóbiti eins og DEET, síðerma fatnaður og notkun moskítónet.
Eins og víða þá er hætta á að vasaþjófar séu á ferð og því ber að varast að vera með verðmæti sýnileg.
Ekki er mælt með því að fólk sé eitt á ferð ferð.
Notaðu opinber leigubílafyrirtæki ef svo ber undir.
Svæði eins og Iquitos og Puerto Maldonado eru almennt örugg fyrir ferðamenn sem fara með skipulögðum aðilum.
Helstu áhættur þar tengjast frekar heilsu (mý, hiti, rakaálag) en glæpum.
Þegar ferðast er til Cusco sem er í 3.400 m.hæð getur hæðarmunur haft áhrif. Mælt er með því að drekka vel af vatni.
Við mælum með því að fólk hugi að sóttvörnum almennt, þvoi hendur og spritti.
Við gætum þess að borða bara á veitingahúsum sem við treystum, eru með gott hráefni og huga að hreinlæti.
Ekki er hægt að drekka kranavatnið, ávallt skal drekka vatn úr lokuðum flöskum.
Þar sem ferðast er í mikilli hæð (Sacred Valley) þarf að huga að því að drekka vel af vatni.
Gjaldmiðillinn í Perú heitir Sol og við tökum út peninga í hraðbanka þegar komið er til landsins.
Flest veitingahús og stærri verslanir taka við greiðslukortum en nauðsynlegt er að hafa reiðufé við hendina einnig.
