Viltu hafa áhrif ?

 

Viltu skapa jákvæð áhrif á ferðalagi þínu? 

Ferðaþjónustan er ein helsta atvinnugrein heims og hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á samfélög og umhverfi. 

Á síðustu árum hefur vaxandi áhersla verið lögð á svokallaða samfélagsmiðaða ferðaþjónustu, þar sem markmiðið er að tryggja að ferðalög nýtist ekki aðeins ferðamönnum heldur einnig heimamönnum og vistkerfum áfangastaðanna. Huga þarf að sjálfbærni, ekki bara í tengslum við umhverfi heldur einnig í tengslum við menningu. 

Hvað felst í samfélagsmiðaðri ferðaþjónustu?

Samfélagsmiðað ferðaþjónusta (e. community-based tourism) byggir á því að heimamenn taki sjálfir þátt í að þróa og reka ferðaþjónustu á eigin forsendum. Þetta getur verið í formi gistingar á litlum gistiheimilum í eigu heimamanna, leiðsagnar um náttúru og menningu, handverksmarkaða eða matarupplifana. Markmiðið er að arðurinn af starfseminni renni beint til samfélagsins og styrki þannig efnahag, menningu og náttúruvernd. Með því að huga að því hvar peningurinn endar getum við haft ótrúleg áhrif á samfélögin sem við heimsækjum og hvernig þeim vegnar.

Hver er ávinningurinn fyrir samfélögin?

  • Efnahagslegur stuðningur: Tekjur af ferðaþjónustu nýtast til að bæta lífskjör og skapa störf á staðnum.
  • Menning: Gestir fá tækifæri til að kynnast menningu og hefðum heimamanna á þeirra eigin forsendum, sem getur jafnframt stuðlað að varðveislu hefðbundinna handverks og listforma.
  • Sjálfbærni og náttúruvernd: Þegar samfélög byggja afkomu sína á sjálfbærri ferðaþjónustu eykst hvatning til að vernda náttúru og vistkerfi öllum til hagsbóta.

Hvað getum við gert til að hafa áhrif?

Þó að ábyrgðin hvíli að stórum hluta á stjórnvöldum og ferðaþjónustufyrirtækjum hvað varðar ýmsa þætti ferðaþjónustu,  þá geta gestir einnig haft áhrif með vali sínu:

  • Velja þjónustu sem rekin er af heimamönnum.
  • Kaupa handverk og vörur sem framleiddar eru á staðnum í stað fjöldaframleiðslu.
  • Sýna virðingu fyrir siðum og menningu samfélagsins sem þeir heimsækja.
  • Ganga úr skugga um að  ferðaskrifstofur vinni í anda sjálfbærni og að samstarfsaðilar þeirra séu að vinna í takt við þessa hugmyndafræði.   

Ferðalög sem skilja eftir sig jákvæð spor og upplifun

Ferðalög geta verið meira en bara upplifun fyrir ferðamanninn sjálfan. Með því að velja samfélagsmiðaða ferðaþjónustu má stuðla að jákvæðum breytingum, hvort sem er með því að styrkja efnahag, menningu eða umhverfi áfangastaðarins. Fyrir vikið geta ferðalög orðið leið til að tengjast nýjum stöðum og fólki á ábyrgari hátt, við upplifum menninguna á dýpri hátt, tengjumst fólki og snúum heim með aðra sýn og tengingar en ella. 

Skapaðu jákvæð áhrif með þínum ferðalögum!

Skoðaðu ferðirnar okkar hér https://www.fidrildi.is/ferdir/