Magnaða Mexíkó!

10 Dagar

Upplifðu töfra Mexíkó á Allraheilagamessu

Töfrar Mexíkó

Ferðin okkar til Oaxaca í Mexíkó er á einum magnaðasta tíma ársins – þegar borgin fyllist af litum, ilmi, tónlist og ævafornum hefðum í tilefni Día de los Muertos.

Þetta er ferð fyrir þau sem vilja upplifa menningu Mexíkó til hins ýtrasta,  ekki bara að horfa, heldur taka þátt.

Við dveljum á notalegu boutique-hóteli sem er vel staðsett í miðborg Oaxaca og njótum þess að upplifa dagskrá sem Malia hjá Altruvistas og hennar fólk í borginni hefur sett saman af einstakri natni.

Ferðin sameinar þátttöku í degi hinna dauðu, matargerð, listir, handverk, sögu frumbyggja, helgisiði, náttúru og samfélagslegar heimsóknir.

Hvað gerum við?

  • Við förum í gönguferð um miðbæ Oaxaca, heimsækjum markaði og skoðum iðandi mannlífið í borginni.
  • Við fáum fræðslu um menningu Mexíkó frá staðbundu leiðsögufólki.
  • Við heimsækjum fornleifasvæði Monte Albán og Mitla sem geyma merkilegar minjar frá Zapotek tímanum (500 f.Krist).
  • Við förum á markaði og upplifum matreiðslunámskeið, kakóhefðir og mezcal-smökkun.
  • Við eigum smverustundir með listakonum og samvinnufélögum kvenna á svæðinu.
  • Við upplifum einstaka hreinsunarathöfn með curandera lækni.
  • Við útbúum altari og undirbúum okkur fyrir Allraheilagamessu ( Día de los Muertos).
  • Við tökum þátt í gleðskap og götuhátíð/vöku borgarbúa vegna hátíðarinnar.
  • Síðast en ekki síst, njótum við samveru í góðum hópi og sköpum einstakar minningar.

Þau sem vilja framlengja dvölina geta notið strandbæjarins Puerto Escondido sem er í 2,5 klukkutíma fjarlægð frá Oaxaca.

Viltu lesa dagskránna seinna?
Hladdu niður dagskránni hér

Þú getur sent okkur fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.

Magnaða Mexíkó!
Frá kr. 558.000
/ Fullorðin
  • 25.október til 4.nóvember
  • Ásdís Guðmundsdóttir
  • Staðfestingargjald er kr.100.000 og er óafturkræft
  • 558.000 fyrir mann í tvíbýli, 115.000 aukagjald fyrir einbýli
  • Íslenskur fararstjóri, leiðsögn á ensku