Sigrún Klara Hannesdóttir er einn stofnanda félagsins Vinir Perú en félagið var stofnað árið 2007. Markmið þess er að styðja við ýmis verkefni í landinu er snúa að börnum og velferð þeirra, svo sem matargjafir, fatnaður og með bókagjöfum.
En hvernig byrjaði þetta allt saman?
“Ég bjó í Perú í tvö ár þar sem ég giftist þarlendum manni, en eftir jarðskjálftana miklu þann 31.maí 1970 hrundi bara allt samfélagið og ekkert við að vera. Ég fékk þó samning um að sinna þróunarverkefni fyrir háskólann í Lima en flutti síðan til Íslands og hef búið hér síðan”.
Sigrún Klara er ein af þeim fyrstu sem útskrifaðist sem bókasafnsfræðingur og þegar heim er komið vann hún við að setja upp skólabókasöfn.
Alltaf blundaði það í henni að snúa til baka til Perú og lét hún verða af því árið 2005. Þá var leiðsögumaður í ferðinni Daniel Salazar og meðal þess sem hann kynnti fyrir hópnum var sjálfboðið starf sem hann sinnti meðal fátæks fólks í Andesfjöllunum.
“Ferðin var viðburðarrík og ferðuðumst við víða, forum á textílnámskeið og landið skoðað. Í einni skólaheimsókninni í gegnum Daníel komst ég í kynni við ungan dreng, Juan Meja, sem ég ákvað svo að styrkja til náms með mánaðarlegu framlagi. Þegar heim var komið kviknaði svo hugmyndin um að stofna félag sem myndi styðja við ýmis verkefni í Perú og þann 1.desember 2007 var Vinir Perú stofnað. Félagið hefur verið í samstarfi við Daniel sem sér um að greina þarfir hverju sinni og að koma fjármagni á réttan stað. Fyrsta verkefnið var að setja upp eldhús fyrir skóla í Choseanio og síðan þá hefur verið hægt að bjóða nemendum upp á heitar máltíðir sem skiptir miklu máli fyrir heilsu og velferð barnanna”.
Eitt stærsta verkefnið sem Vinir Perú stóðu fyrir var að safna fyrir skólabókasafni í Qeabrada Verde sem vígt var árið 2014. Þá var 9 manna hópur frá Íslandi viðstaddur og var mikil hátíð í tilefni opnunarinnar. Læsi er auðvitað grundvöllur velferðar og aðgangur að bókum er mikilvægur í lestrarkennslu.
Þegar Covid skall á, hafði það gríðarleg áhrif á líf fólks í Perú eins og svo víða. Vinir Perú sendu út neyðarkall til Íslendinga og safnaðist saman 500.000 frá fólki hvaðanæva að sem vildi leggja hönd á plóginn. Þessi gjöf var ómetanleg og skipti gríðarlega miklu máli fyrir þetta fátæka fólk sem ekkert hafði á milli handanna.
“Þess má geta að engin yfirbygging er í félaginu og rennur allur ágóði óskiptur til þess fólks sem þarf á því að halda. Félagið hefur selt ýmsa minjagripi frá Perú og einnig alpakka ull, en um 80% af allri alpakka ull kemur frá Perú. Hægt er að leggja félaginu lið með því að leggja inn á reikning 0322-26-053120, kt. 531207-1300. Margt smátt gerir eitt stórt!”
Fiðrildaferðir bjóða nú upp á spennandi og áhugaverð ferð til Perú en leiðsögumaður ferðarinnar er Daníel sá sem er tengiliður Vina Perú.
Hluti af dagskránni eru heimsóknir í tvo skóla sem hafa fengið stuðning frá félaginu.
Þeir sem hafa áhuga á því að slást í för með okkur til Perú geta skoðað ferðalýsinguna hér



