
Upplifðu töfra Indlands dagana 9.janúar til 23.janúar 2026
Töfrar Suður - Indlands
Krydd og litir, hindúahof og menning, upplifun sem lætur engan ósnortinn
Aðeins 10 sæti í boði!!
Bókaðu hér!
Verð
850.000 í tveggja manna herbergi
950.000 í eins manns herbergi
Innifalið
Flug til og frá Indlandi (í gegnum London).
Gisting í á 4-5 störnuhótelum (boutique og heritage)
Matur skv. dagskrá
Allt flug innanlands
Akstur á milli staða
Aðgangseyrir inn á söfn og annað sem er í dagskrá
Ekki innifalið
Vegabréfsáritun til Indlands
Bólusetningar
Áfengi og málsverðir sem ekki er minnst á í dagskrá.
Dægradvöl sem ekki er minnst á í dagskrá
Bókaðu hér!
Ferðalagið!
Við hefjum ferðina í Mumbai þar sem við hittum Jenný D’Souza okkar leiðsögukonu sem verður með okkur allan tímann. Farið verður í Dharavi “slum” hverfið sem er ógleymanleg upplifun, við skoðum safn um Ghandi og farið verður í fallegt Krishna hof.
Við fljúgum til Cochin á Suður Indlandi en borgin var áður vagga kryddútflutnings og þar má sjá áhrif frá veru breta, hollendinga og portúgala. Byggingarlist, matargerð og tungumál, allt þetta ber keim af Evrópskum áhrifum. Við skoðum þennan fallega bæ, röltum um götur og torg og sjáum fiskimenn veiða í sjávarmálinu og selja aflann á markaði.
Þá liggur leiðin til Allepey en þessi landshluti er kallaður “Gods own country” en hér er ótrúlega fallegt um að litast.
Siglt verður um vatnahéruðin, farið í land og verslað í matinn og svo verður hádegismatur um borð.
Við heimsækjum teekrur í Munnai en þar er einnig hægt að gera ýmislegt spennandi, fara á bak fílum, fara í gönguferðir eða bara að slaka á.
Síðasti áfangastaðurinn er Goa en þar njótum við strandlífsins og skoðum krydd plantekru og fáum fræðslu um þau helstu krydd sem ræktuð eru í héraðinu.
Inn í þetta ævintýri fléttast svo matarupplifun, sterkir litir, hindúatrú og samvera í góðum hópi.
Indverskur fararstjóri er með hópnum allan tímann ásamt íslenskum fararstjóra.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?
Við höfum farið tvær ferðir til Indlands með Fiðrildaferðum og Get involved in India . Hópurinn er lítill sem gerir þetta ennþá betra og fólk kynnist betur. Hver dagur var ævintýri út af fyrir sig margt var skoðað og við kynntumst menningu og siðum Indverja á einstaklega skemmtilegan hátt. Jenný fararstjóri er alveg einstök og hugsaði mjög vel um okkur á allan hátt .Mér fannst ég vera fullkomlega örugg á mjög svo framandi slóðum.
Ég get heilshugar mælt með ferðum til Indlands með Fiðrildaferðum, fyrir þá sem langar að fara í öðruvísi ferð á framandi slóðir og kynnast framandi menningu og fá einnig tækifæri til að kynnast heimamönnum".
Dagný og Hjörtur
"Í janúar 2024 ferðuðumst við ásamt 6 öðrum til Suður Indlands með Ásdísi og Jenny D'Souza. Við flugum til Mumbai dvöldum þar í nokkra daga flugum síðan til Kerala og enduðum í Goa. Þessi ferð var mjög vel skipulögð, alveg ógleymanleg og alger opinberun varðandi líf á Indlandi. Takk fyrir okkur".
Margrét og Andri
" Ferðin var sérsniðin af Ásdísi í samstarfi við Jenny D'Souza sem ég kalla núna „mömmu mína,“ enda óð hún eld og brennistein fyrir hópinn, tryggði að við værum alltaf í bestu mögulegu aðstæðum með ótrúlegri natni.
Ásdís hafði lagt mikla áherslu á persónulegar heimsóknir inn á einkaheimili og valið óhefðbundin hótel – „heritage“ hótel með mörg hundruð ára sögu.
Það er óhætt að segja að ég er nú þegar skráð í næstu ferð með Fiðrildaferðum. Ég er ekki alveg viss hvert en mér er eiginlega alveg sama – svo lengi sem Ásdís er leiðsögukonan og töframaðurinn á bak við ferðina"
Bjarney Lúðvíksdóttir
Ferðaskipulag
-
Flogið frá Keflavík tilHeathrow kl.11.45-og lent kl. 15.00
Flogið frá Heathrow til Mumbai kl.16.25 og lent 6.55 -
Koma til Mumbai
Gist á 5 stjörnu hóteli Taj Lands inn
Kl. 14:00 – Innritun á hótel - hópurinn hittist og hristur saman
Kl. 17:00 – Förum á flakk og njótum götumatar á strætum borgarinnar sem er engu líkur.
Gisting í Mumbai (Morgunmatur, hádegismatur og götumatur)
-
Kl. 10:00 – Við skoðum borgina og athyglisverða staði, skoðum sögulegar byggingar og fræðumst um hindúisma og menningu Indlands.
Hádegismatur verður á vinsælum veitingastað í Suður-hluta Mumbai.Seinnipartinn getur þú slakað á eða skoðað þig um í nágrenni hótelsins.
Kl. 18:00 – Heimboð til Jennyar - hér fáum við ekta heimaveislu á indversku heimili.Gisting í Mumbai (Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
-
Kl. 9.00 – Í dag heimsækjum við Global Vipassana Pagoda hugleiðslusetur þar sem Vipassana hugleiðsluaðferðin er iðkuð. Þetta er stærsta hugleiðslusetur af þessu tagi í heiminum en þarna geta 8.000 manns hugleitt.
Kl. 14:00 – Við heimsækjum skóla fyrir bágstödd börn en skólinn er rekinn með styrktarfé. Við kynnumst starfsemi skólans og heimsækjum skólastofur. Hér fáum við tækifæri til að gefa af okkur til starfseminnar og láta þannig gott af okkur leiða.
15.00 - Dharavi slum eða Bollywood heimsókn.
Dharavi slum hverfið er einstakur staður, það er heimur út af fyrir sig þar sem fólk býr og starfar.
Aðalatvinnuvegirnir eru textíll, leirkera- og leðurvinnsla auk endurvinnslu.
Heimsóknin endar með innliti inn á heimili þar sem við fáum mat.
Mumbai er meðal annars þekkt fyrir Bollywood söng- og danskvikmyndir enda er söngur og dans órjúfanlegur hluti af menningunni á Indlandi.Í dag kynnumst við Bollywood, förum í skoðunarferð í kvikmyndaver eða lærum að dansa Bollywood dansa sem eru engu líkir.
Kvöldið í Mumbai er laust fyrir þig til að versla eða slaka á.
Gisting í Mumbai (Morgunmatur, hádegismatur)
-
Brottför á flugvöll og flug til Cochin á Suður-Indlandi
Gist á hótelinu Fragrant Nature - 5 stjörnur https://www.fragrantnature.com/mattancherry-cochin/
Innritun á hótel og tími til að slaka aðeins á.
19.00 Matarboð og heimsókn í heimahús þar sem við upplifum einstaka gestrisni og hlýju Kerala-búa.
Gisting í Fort Cochin (Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
-
Matreiðslunámskeið !
Kl. 09:00 – Við lærum að elda á indverska vísu og hvernig á að nota kryddin.
Við heimsækjum markaðinn, förum í samkunduhús og kirkju á svæðinu.
Kl. 17:30 – Kathakali danssýning - Kathakali er dans-leiklistarhefð sem á uppruna sinn í Kerala á Indlandi og einkennist af stílfærðri leikrænni tjáningu með nákvæmum handahreyfingum og flókinni andlitstjáningu.
Kvöldið er laust fyrir þig til að slaka á í Fort Cochin.
Gisting í Fort Cochin (Morgunmatur og hádegismatur)
-
Í dag skoðum við arfleifð Fort Kochi sem er sérstaklega sjarmerandi bær með hollenska, portúgalska og breska arfleifð sem sést í arkitektúr og hönnun bæjarins. Þar má sjá fiskimenn að veiðum með bambus stöngum og svo er fiskurinn seldur á markaði við sjávarsíðuna. Við skoðum einnig Jew Town, sem er þekktur fyrir litlar verslanir, listmuni og handverk og notaleg kaffihús og veitingahús. Við borðum hádegismat á einum slíkum veitingastað við sjávarsíðuna.
Kvöldið er laust til að halda áfram að skoða Jew Town eða sitja og fylgjast með mannlífinu á kaffihúsum í Fort Cochin.
Gisting í Fort Cochin (Morgunmatur og hádegismatur)
-
Kl. 09:00 – Í dag ökum við til Munnar sem er fallegur bær í fjallgarðinum Vestur-Ghat í Kerala.
Gisting á hótelinu Fragrant Nature https://www.fragrantnature.com/pothamedu-munnar/
(Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
-
Kl. 11:00 – Heimsókn í tebúgarð og kryddgarð, en Kerala er þekkt fyrir fjölbreyttar kryddjurtir eins og kardimommur, pipar, kanil, o.fl.
Við munum einnig heimsækja fílabúgarð.
Gisting í Munnar (Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
-
Kl. 11:00 – Við ökum til Allepey þar sem við njótum einstakrar fegurðar Guðs eigin lands (Gods own country, eins og það er kallað). Alleypey er umlukið vötnum þar sem pálmatrén setja svip sinn á umhverfið,.
Um kvöldið förum við og heimsækjum tvö falleg hof í bænum Alleppey.
Gisting á hótelinu Sterling Lake Palace Alleppey – 5 stjörnur
https://www.sterlingholidays.com/resorts-hotels/lake-palace-alleppey
(Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
-
Upplifðu dásamlega siglingu um vatnasvæði Alleppey. Það er engu líkt að sigla þarna um í ró og næði frá skarkalanum og njóta matar um borð.
Kvöldið er frjálst fyrir þig til að slaka á og njóta fegurðar Kerala.
Gisting í Alleppey (Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur)
description -
Í dag tökum við daginn snemma þar sem við eigum bókað flug klukkan 6:15 frá Kochi til Goa en það er tveggja og hálfs klukkustundar ferð til Kochi flugvallar.
Við lendum í Goa um kl. 08:00 og slökum á þennan dag.
Gisting í Goa á Royale Exotica Calangute, Goa https://royaleexotica.com/ eða Goan Heritage Calangute, Goa https://goanheritage.com/
(Morgunmatur)
-
Í dag er algjörlega laus dagur fyrir þig til að slaka á og njóta stemningarinnar á Goa.
Meðal þess sem hægt er að gera er að fara á ströndina, fara í Ayurveda nudd, slaka á á hótelbarnum, fara í gönguferð eða bara slaka á.Gisting í Goa (Morgunmatur)
-
Ferðalok!
Við fljúgum til Mumbai og svo áfram til Íslands
Verð
kr.850.000
2.manna herbergi
kr. 950.000
Eins manns herbergi
Skráðu þig í ferðina með því að smella hér
Staðfestingargjald er kr. 100.000 og greiðist við skráningu í ferð. Staðfestingargjaldið er óafturkræft en hægt að nýta í aðrar ferðir Fiðrildaferða ef forföll verða.
Gjaldið greiðist inn á reikning 133-26-016446, kt. 570724-1850.
Fararstjórn
Fararstjóri er Ásdís Guðmundsdóttir, stofnandi og eigandi Fiðrildaferða. Ásdís hefur farið með hópa til Indlands og Hawaii á undanförnum árum og stofnaði ferðaskrifstofuna Fiðrildaferðir í júlí 2024.
Hún hefur leiðsögumannapróf frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur skipulagt ferðir á Íslandi fyrir erlenda hópa.
Jenny D’Souza er með okkur í ferðinni allan tímann. Hún er fædd og uppalin á Indlandi og rekur ferðaskrifstofuna Get Involved in India. Þetta er fjórða ferðin sem hún ferð með íslendingum um Indland og hefur einstakt lag á því að sinna farþegum af alúð og umhyggju.